Eftirfarandi er niðurlag ræðu sem Vilmundur Gylfason hélt á alþingi í nóvember 1982, þegar hann undirbjó stofnun Bandalags jafnaðarmanna: » Lesa meira
Fréttir
Þriðjudagur
Af tæknilegum ástæðum tefst uppfærsla vefjar Herðubreiðar. Að óbreyttu verður hann uppfærður næst þriðjudaginn 11. maí.
Þrír sérfræðingar árið 2007
Í skýrslu rannsóknarnefndar alþingis er margan fróðleik að finna, m.a. um „nægt framboð af „fjármálaráðgjöfum“ utan bankanna sem hvöttu fólk heils hugar til erlendrar lántöku.“ Til dæmis þetta: » Lesa meira
Tími yfirbótar en ekki útskýringa
Eftir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur
(Þetta ávarp flutti Ingibjörg Sólrún á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar í Garðabæ 17. apríl 2010.) » Lesa meira
Ekki við bjargandi eftir 2006
Alger samhljómur er milli skýrslu rannsóknarnefndarinnar og Más Guðmundssonar seðlabankastjóra í greiningu á aðdraganda falls bankanna. » Lesa meira
Galið fólk
Yfir hvaða rauntölum í skattabreytingum skyldi meintur formaður Sjálfstæðisflokksins hafa trompast á þingi í gær? » Lesa meira
Að vaka og vinna
Á ársfundi Vinnumálastofnunar í gær vakti athygli að Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra skipaði nýjan stjórnarformann stofnunarinnar Runólf Ágústsson, fyrrum rektor á Bifröst og frumkvöðul hins öfluga menntasamfélags sem orðið hefur til hjá Keili. Í ávarpi sínu á fundinum sagði ráðherrann m.a.: » Lesa meira
Skugginn af Styrmi
Skuggi svífur nú um ritstjórnarskrifstofur Morgunblaðsins í Hádegismóum – skuggi Styrmis Gunnarssonar í líki Agnesar Bragadóttur.
» Lesa meira
Einn lítill moli í púkkið
Einn nýliði Vinstri grænna á þingi hefur sprottið fram eins og fullskapaður stjórnmálamaður af betri sortinni. Þetta er Björn Valur Gíslason skipstjóri frá Ólafsfirði, varaformaður fjárlaganefndar. Fumlaus framganga hans í erfiðum málum sumarsins vakti athygli og nú hefur hann bætt um betur og lagt til að sjómannaafsláttur verði felldur niður. Kjarkmaður, Björn Valur, en viðbrögð kontóristanna í greininni eru fyrirsjáanleg.
» Lesa meira
„Og nú þarf ég að fara að vinna“
Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor hefur sent nokkrum í ritnefnd Herðubreiðar samhljóða bréf vegna fyrri viðskipta hans við ritstjóra tímaritsins (sem sjá má hér, hér og hér) og sendir sem áður afrit til lögmanns síns, líklega til hægðarauka. Einn ritnefndarmaður, Guðmundur Andri Thorsson, hefur í kjölfarið átt í bréfaskiptum við Hannes sem Herðubreið birtir hér, lesendum sínum til upplýsingar.
» Lesa meira
Hin nýja sjálfstæðisbarátta (I)
Eftir Árna Pál Árnason
Tækifærin fyrir hinar „hefðbundnu“ atvinnugreinar Íslendinga innan ESB eru ómæld.
Pennavinirnir
Ritstjóra Herðubreiðar hefur borist enn eitt bréfið frá Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor. Bréfið er svohljóðandi:
„Þegar gamlir vinir bregðast er nýrra leitað“
Eftir Þórólf Matthíasson
Í kjölfar útrásarvíkinganna fóru stjórnmálamenn og konur. Utanríkisþjónustan beinlínis blómstraði. Sendiráð voru stofnuð jafnt í fjarlægustu afkimum Afríku sem Þórshöfn í Færeyjum, svo við gleymum nú ekki dýrustu borg heims, Tókíó, og fjölmennasta ríki heims, Kína. Hraðinn í uppbyggingunni var svo mikill að það var ekki einusinni nóg framboð af aflóga pólitíkusum í sendiherraembættin og stöku diplómat fékk langþráðan póst.
» Lesa meira
Var ölvunaraksturinn Vegagerðinni að kenna?
Eftir Jón Baldvin Hannibalsson
Sumir vilja meina að upphaf ógæfunnar megi rekja til EES-samningsins, sem gekk í gildi í ársbyrjun 1994, eða fyrir fimmtán árum. Sjálfur forseti lýðveldisins, hinn rómaði lofsöngvari útrásarauðkýfinganna, hefur jafnvel tekið undir þennan söng.
