Til áréttingar

15/02/2010

Eftir Karl Th. Birgisson

Þess misskilnings gætir, m.a. hjá Jónasi Kristjánssyni, að ég telji að stjórnmálamenn eigi að fá lengri frest til að svara rannsóknarnefnd alþingis. Það hef ég hvergi gefið í skyn.

Ég hef hins vegar undrazt hversu skamman tíma nefndin ætlar sjálfri sér til að vinna úr svörunum, eins og lesa má hér.

Hið fyrra hefur Hannes Hólmsteinn Gissurarson hins vegar skrifað og þóttist þar með taka undir með mér. Ég er raunar þveröfugrar skoðunar um flest af því sem Hannes nefnir í grein sinni.

Misskilningurinn öðlaðist síðan sjálfstætt líf þegar Pressan spyrti okkur tvo saman með fyrirsögninni „Hannes Hólmsteinn sammála Karli Th.“ (Sú fyrirsögn hlýtur reyndar að varða við einhverja grein meiðyrðalöggjafarinnar…)

Rétt er að halda því til haga, að þótt Hannes Hólmsteinn þykist kannske vera sammála Karli Th. af því að það hentar honum núna, þá er Karl Th. – aldrei slíku vant – hreint ekki sammála Hannesi Hólmsteini.