Elías Mar og Kínverjarnir

10/06/2010

Eftir Hjálmar Sveinsson

Í nóvember 2007 kom út bók sem ég skrifaði um Elías Mar rithöfund. Hún heitir „Nýr penni í nýju lýðveldi“.

Ég held að þetta sé áhugaverð bók. Hún hefur allavega fengið góða dóma og hrós hjá þeim sem hafa lesið hana. Elías var vinstrisinni og hernámsandstæðingur.

Ég leyfði mér að halda því fram í viðtölum okkar að allur þjóðernisæsingurinn vegna veru Bandaríkjahers hér á landi væri svolítið sérkennilegur í dag og ekkert mjög sannfærandi. Voru ekki Bandaríkjamenn vina- og lýðræðisþjóð sem hafði átt stóran þátt í því að losa Evrópu undan oki nasismans? Var ekki bara hið besta mál að njóta verndar þeirra og vinskapar í viðsjálum heimi?

Elíasi fannst þetta vondur málatilbúnaður hjá mér og ég þarf varla að taka fram að hann var mjög mikið á móti aðild Íslands að Evrópusambandinu. Elías vinur minn var eins og fleiri íslenskir vinstri menn af hans kynslóð: heimsmaður í andanum en einangrunarsinni hvað varðaði stöðu Íslands í heiminum.

Hann kvaðst reyndar vera svolítið hræddur um nýtt hernám. Ég hváði og spurði hvort hann vildi kannski fá bandaríska herinn aftur. Þá sagði Elías:

Nei, það vil ég ekki, en ég vil að við höfum afskaplega gott samband við Bandaríkjamenn um að hernema okkur aftur með stuttum fyrirvara ef á þarf að halda. Ég vil heldur hafa Bandaríkjamenn en Kínverja. Ef Bandaríkjamenn myndu ekki vilja þetta, vildi ég að við töluðum við Breta eða einhverja norðurlandaþjóð.

Ég er smeykur við við Kínverja vegna þess að Kínverjar eru með útþenslustefnu.

Hjálmar Sveinsson