
Úlfar Þormóðsson

Einsleit framtíð
Fyrir allmörgum árum var byrjað á að reisa íbúðablokkir fyrir fólk sjötíu ára og eldra, 70+. Húsnæði var sniðið að þörfum íbúanna með greiðum aðgangi að margs konar þjónustu sem eldra fólk þarf á að halda til jafns við aðra og umfram þá. Þetta þótti gefast vel og ekki leið á löngu áður en farið […]

Rof
Sú tegund af lýðræði sem við höfum búið við hérlendis í áratugi á í vök að verjast þessi misserin. Fyrir því eru margar ástæður. Flestum þeirra hafa verið gerð ágæt skil í blöðum og útvarpi að undanförnu. Og á netinu að sjálfsögðu. Einn skaddaður þráður lýðræðisins hefur þó ekki verið mikið til umræðu. Það er […]

Sýndarveruleiki
Komið hefur í ljós að Ólafur Ólafsson, brellumeistari þjóðarinnar, tók um það bil 50 miljón dollara í umboðslaun af sjálfum sér fyrir að koma sér í þá stöðu að geta keypt Búnaðarbankann. Þetta er snilldarbragð. Og hann hefur tjáð sig um brelluna, Ólafur með ökklabandið, og fullyrt að enginn hafi beðið tjón af viðskiptunum, hvorki […]

Íslandsmeistarinn
Herra Ólafur Ólafsson, framkvæmdamaður, skipakóngur, fjárfestir og stóreignamaður er ótvíræður Íslandsmeistari í blekkingum samkvæmt opinberri skýrslugerð. Á götumáli samanstanda blekkingar hans af svikum, minnisleysi og lygum. En þannig orð á ekki að nota um fíniríismann og höfðingja. Jafnvel þótt hann hafi áður verið dæmdur í tukthús fyrir líkar sakir og nú hefur verið upplýst um, […]

Ökklabandið
Ef maðurinn er glæpon og þarf að sitja af sér dóm er það til stórkostlegra bóta að fá ökklaband. Þá getur maðurinn spókað sig almannafæri, sinnt viðskiptum utan múra og látið gott af sér leiða. Ólafur Ólafsson, oft kenndur við Samskip hlaut fjögurra og hálfs árs fangelsisdóm fyrir Al Thani-málið svokallaða. Eftir stutta viðkomu á […]

Dvergar
Þennan stutta kafla sem hér fer á eftir gróf ég rétt í þssu upp úr óprentuðu handriti frá 2014 og birti hann hér í tilefni af þeirri umræðu sem fram fer um örlög fósturs með dáns-heilkenni. „Oft og lengi hef ég ætlað mér að skrifa um ævi, störf og afdrif dverga. Ég hafði bara ekki uppburði […]

Þetta er draumi betra
Við erum enn á ný orðin sætasta stelpan á ballinu. Við, íslenska þjóðin, erum komin aftur á heimsdansleik bankamanna. Flottustu strákarnir eru þegar búnir að skrifa sig á danskortið hjá okkur; glæstustu útlendingarnir: Goldman Sachs, fjárfestingabanki, Och-Ziff Capital Management, fjárfestingasjóður og mútumeistari Afríku og líka Taconic Capital, vogunarsjóður svo nokkrir þeir stásslegustu séu nefndir til […]

Nautabanarnir í Búðardal
Þeir hrópa, stórhugarnir með hálfbyggðu hótelin, ferðamálafrömuðirnir með ógreiddu bíla-leigu-bíla-lánin og fokheldu b&b íbúðirnar. Þeir hrópa á gengisfellingu, samradda og skrækróma, því þeir vita að stórútgerðin mun taka undir með þeim innan tíðar og væla bakraddir við gamla lagið þeirra. Og textann, hvert orð, hefur öllum skaranum tekist að læra með einstakri ástundun: Það verður […]

Hvurslags eiginlega er þetta?
Iðnó er annað og meira en hús. Það er hugtak sem er til komið vegna þess lífs sem þar hefur verið lifað, sögunnar sem það geymir, vegna fólksins sem þar hefur starfað að hugðarefnum sínum. Iðnó er tákn um þetta allt og ótalmargt annað. Og nú hefur það gerst að, konan sem hefur haldið lífi […]

Karamella á körfubotni
Fólkið í landinu vill greiðari samgöngur hér og hvar. Þetta er afar brýnt úrlausnarefni. Stjórnmálamennirnir sem nú sitja í ríkisstjórn vissu af þessum vilja kjósenda og lofuðu því í kosningabaráttunni eð ef þeir kæmust til valda mundu þeir bæta úr. Svo um munaði. Og þeir hlutu kosningu og settust í ríkisstjórn. En þegar á reynir […]

Hjálp í viðlögum
Það er illt þegar öfundargenin stýra hugsun manna og framgöngu. Dæmi um þetta má sjá af skrifum á tölvuskjá í morgun, 27.02.´17, eftir einhvern johannpall@stundin.is, hvað svo sem hann heitir réttu nafni í þjóðskránni. Í skrifunum ræðst hann með lævísum fjandskap að tveimur máttarstólpum samfélagsins og eiginkonu annars þeirra. Hinn öfundgjarni segir frá því, eins […]

Skítamix
Sölumenn Arion banka eru komnir með vænlega kaupendur á krókinn. Það munu vera erlendir vogunarsjóðir, sem eitt sinn voru kallaðir hrægammar í umræðunni. Þetta er dulítið bratt og óhætt að spyrja hvort asinn við söluna sé tengdur því að vogunarsjóðirnir séu íslenskir skattaþjófar sem eiga í vændum sakaruppgjöf fyrir brot sín, og allt að 20% […]