
Úlfar Þormóðsson

Framsókn
Í hinni ágætu netorðabók Snörunni segir svo meðal annars um orðið framsókn: fram|sókn kvk það að sækja fram/ viðleitni sem beinist í framfaraátt/ framrás, sókn; framför, þróun Framsókn sérnafn, (gælunafn) Framsóknarflokkur Við höfum hreyfingu starfandi með þessu gælunafni, Íslendingar. Framsóknarflokkinn. Þetta er mikið nafn. Það vekur vonir um bjarta framtíð. Það er því ekki nema sanngjarnt að horfa til verka þeirra […]

Gamlingjar
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks var spurður að því í útvarpsviðtali í morgun hvort stjórnvöld ættu að velja flóttafólk, sem hingað fengi að koma, með tilliti til menntunar eða trúar. Þingmaðurinn svaraði þessu: „Ég hef spurt þessara spurninga og velt þeim fyrir mér. Vegna þess að ég er mjög mikið spurður um þessi mál í samfélaginu […]

Leti?
Það er ástæða til þess að velta því fyrir hvers vegna forsætisráðherrann talar oft út úr kú þegar fréttamanna leggja spurningar fyrir hann. Í Kastljósi gærkvöldsins var hann spurður að því hvort hann teldi 600 miljón króna framlag til viðhalds á húsakosti Landsspítalans á fjárlögum næsta árs vera nóg þegar vitað er að 2000 miljónir […]

Gettó
Félagsleg staða þeirra sem leigja húsnæði er ömurleg. Skiptir þá ekki máli hvort viðkomandi hefur valið að vera leigjandi eða neyðst til þess; húsaleiga er há og yfir velsæmismörkum. Ástæður þessa eru margar. Ein er byggingakostnaður, sem fullyrt er að sé allt að þriðjungi hærri en hann er í raun. Það er snúið að sanna […]

Afturganga
Varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Hanna Birna Kristjánsdóttir fyrrverandi ráðherra er risin upp. Hún mætti í útvarp í morgun og sagði margt að fyrri venju sinni. Hún var spurð um loforð sem Sjálfstæðisflokkurinn gaf fyrir þingkosningar, að kosið yrði um ESB aðild. Hún svaraði: „ Það blasti við okkur þegar það mál kom upp að staðan var allt […]

Lífsandi
Af allflestum þjóðflutningum sem veraldarsagan greinir frá má draga þessa ályktun: Því betur sem þjóðir taka á móti ókunnugum þeim mun betur gengur sambúðin og báðir njóta góðs af. Víðsýni og menntun beggja vex. Þær þjóðir sem bregðast til varnar gegn innflytjendum með ofbeldi lenda oftar en ekki í innanlandsófriði og upplausn. Ná á dögum […]

Glæta
Frameftir gærdeginum mátti halda að í það minnsta þrjú jákvæð tíðindi hefðu borist landslýð. Og tvö af pólitískum vettvangi. Það er nýtt. Fyrst vil ég nefna hugmyndir fjármálaráðherra um að láta hefja undirbúning að gerð heildarlaga um stofnanakerfi ríkisins; koma reglu á opinberar stofnanir, skýra hlutverk þeirra og marka starfshættina. Þetta gæti orðið til góðs. […]

Stjórnmálalæsi
Þessa dagana er mikið rætt um byrjendalæsi sem mér þykir illa smíðað orð og ekki auðskiljanlegt. Einkum þegar það er komið í setningu eins og þessa úr Fréttablaðinu í morgun … einkunnir barna í skólum með byrjendalæsi … vegna þess að það er ekki alveg á hreinu hvað verið er að fjalla um; eða hvað er […]

Afreksmaður
Prófessor Hannes Hólsteinn hefur gert afar merka vísindalega uppgötvun: Snorri Sturluson var Sjálfstæðismaður. Það er aldeilis ómögulegt að gera sér grein fyrir hvaða áhrif þetta afrek prófessorsins muni hafa á söguritun. Það er þó talið víst að þau verða veruleg.

Tómahljóð
Umræðan sem skapast hefur vegna þvingunaraðgerða Vesturveldanna gegn Rússum og viðskiptabanns Rússa á íslenskar fiskiafurðir eru merkilegar, meðal annars fyrir þær sakir hversu ómerkilegar þær eru. Ráðherra hrópar: Útgerðin á að mæta þessum skelli sjálf með því að greiða ekki út hagnað af rekstrinum. Og bætir svo við á sama andartaki í sömu ræðu: Ríkisstjórnin […]

Hirting
Það er augljóst að Davíð Oddsson, ritstjóri skrifar Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins þessa helgina. Það er þungt í karlinum vegna þátttöku Íslands í þvingunaraðgerðum vesturveldanna gegn Rússunum og viðskiptabanns Rússa á íslenskar fiskafurðir í framhaldi af því. En hann tjáir þykkju sína með gáska og gerir lítið úr utanríkisráðherranum. Ritstjórinn hirtir ráðherrann og kvartar yfir því að […]

Talsmaður fáfræðinnar
Það er sorglegt að sjá ungan mann forheimskast eftir því sem hann lifir lengur. Og grátlegt að sjá hann auglýsa fáfræði sína. Ásmundur Einar Daðason (ÁED), þingmaður Framsóknarflokksins og aðstoðarmaður forsætisráðherra skrifar um Landsbanka Íslands á heimasíðu sína. Hann vill að bankinn „hafa forystu í því að nýta ljósleiðaravæðingu landsins í stað þess að þjappa […]