
Úlfar Þormóðsson

Aulahrollur
Eitt af því sem oft hefur vakið hjá mér aulahroll er þjóðfáni. Ekki sá íslenski umfram aðra, ekki flagg í hálfri stöng, ekki fáni við hún að heiðursdegi, heldur fáni á vörum og varningi, blakatandi fáni við einbýli og opinberar stofnanir á virkum degi, flagg á skrifborði; fáninn á veggnum sem skrifborð íslenska utanríkisráðherrans […]

Til umhugsunar
Það er gagnlegt að lesa grein sem Svavar Gestsson, fyrrverandi menntamálaráðherra mm. skrifaði á heimasíðu sína, Hugmynd, í gær, 23. marz. Hún er unnin upp úr umsögn sem hann skrifaði fyrir Tímarit Máls og menningar um bók Styrmis Gunnarssonar, Í köldu stríði. Greinin varpar ljósi á þá áleitnu spurningar sem sífellt sækja að, hvers […]

Glæta
Vorið kemur á morgun, 20.03. samkvæmt almanakinu og vorleysingar eru hafnar í pólitíkinni. Samkvæmt nýjustu skoðunarkönnun MMR er augljós klofningur í Sjálfstæðisflokknum, hrun í Framsókn þrátt fyrir síendurteknar vinsældarveiðar, fylgi Bjartrar framtíðar minnkar frá fyrri mælingum, fylgi Samfylkingar og Vinstri grænna stendur í stað en Píratar vaxa, mælast með 23,9% stuðning, mest allra stjórnmálaflokka. […]

Bréf
Það er ekkert léttaverk að skrifa örstutt bréf með allnokkrum tíðindum og túlka þau þar á áhrifaríkan hátt. Naumast á færi annarra en skýrleiksmanna. En nú hefur það gerst. Íslenski utanríkisráðherrann settist við skrifborðið á kontórnum sínum með íslenska fánann í ramma á vegg til hliðar við sig og skrifaði undir sendibréf. Hver samdi […]

Vorleysingar
Það eru víðar læti en í veðrinu. Það bálar líka upp í pólitíkinni. Frammararnir eru ókyrrir. Það fjarar undan þeim. Það er svo augljóst að þeir skynja það sjálfir. Og leita ráða (hjá almennatengslafyrirtækjum?) til að flikka upp á sig, ná vinsældum. Formaðurinn reið á vaðið og óskapaðist yfir græðgi bankanna sem flokkurinn hans […]

Hvar er Kjalarnes?
Ætli það sé ódýrara fyrir hvern og einn að halda síma eftir að Landssíminn okkar allra var gefinn eða seldur fyrir slikk, símstöðvar lagðar niður í dreifbýli og þjónustan einkavædd? „Hvar er Kjalarnes“, spurði hundraðkróna þjónusturöddin í Nóva, Vódafón, Símanum eða hvað það heitir, þegar spurt var eftir símanúmeri þar í sveit. „Nei, enginn […]

Froða
Þegar hæfir stjórnendur átta sig á að þeir hafa ekki staðið sig sem skyldi líta þeir yfir unnin verk í leit að því sem miður fór. Vanhæfir stjórnendur fara öðruvísi að. Þeir svipast um eftir sökudólg því að sjálfir gera þeir aldrei neitt rangt. Forsætisráðherra landsins er vanhæfur stjórnandi. Hann er líka froðusnakkur. […]

Bankasiður
Í það mund sem Þráinn Bertelsson, fyrrverandi alþingismaður var að skrifa þarfa og góða grein um siðleysi sem bankarnir leyfa sér í samskiptum við viðskiptamenn sína átti ég erindi í Arionbanka, fyrrum Kaupþingbanka, fyrrum Búnaðarbanka Íslands ef rétt er tíundað. Mér þótti við hæfi að fara í aðalstöðvarnar þó að ég ætti bara lítið […]

Kröm
Íslensku byssuliðarnir eru enn og aftur roknir af stað með kröfur sínar um að vopnvæða lögregluna frekar en orðið er. Þær eru í nýjum búningi. Þeir þykjast einvörðungu vera að sækjast eftir því að lögreglan fái yfirgripsmeiri heimild til þess að kanna bakgrunn fólks, hegðun þess og hugsanagang. Þegar það er fengið munu þeir […]

Magnafsláttur
Árið 1969 taldi ég ekki fram til skatts nokkra þúsundkalla sem ég hafði unnið mér inn árið 1968 hjá sveitarfélagi vegna þess að ég fékk þá ekki greidda fyrr en 1969. Skattstjórinn komst í málið. Ég fór og hitti hann og sagði honum hvernig í pottinn væri búið. „Þetta eru tekjur síðasta árs og […]

Opnum augun
Um áraraðir hafa útgerðarmenn getað fengið lán með veði í því sem þeir ætla kannski að veiða, fiskveiðiheimildum. Þær fá þeir fyrir smáaura. Sumar nota þeir, aðrar selja þeir fyrir stórfé. Við, Íslendingar allir, eigum fiskimiðin saman. Þau eru í umsjá ríkisstjórnar. Hún gefur út veiðiheimildir. Nýtt frumvarp um stjórnun fiskveiða er strandað á […]

Grið
Sem betur fer virðist fjármálaráðherra ætla að lyfta af sér farg slúðurs og illmælgi sem hann hefur legið undir vegna sleifarlags við að heimila kaup á gögnum um skattaþjófa. Það er gott. Það sem fylgir sinnaskiptunum er síðra. Það var haft eftir ráðherranum í Ríkisútvarpinu í dag, 11. febrúar, að von sé á breytingum […]