trusted online casino malaysia

Efst á baugi

Til nokkurs að vinna

Til nokkurs að vinna

Vinstri grænir ætla að tala við Sjálfstæðisflokk og Framsókn um stjórnarmyndun af meiri alvöru en undanfarna daga. Það eru ekki allir lukkulegir yfir því. Og ég er svo sem ekki fjöðrunum fenginn. Mér er um hvorugan viðræðuflokkinn gefið. Til dæmis treysti ég ekki forystu Framsóknarflokksins. Hún hefur sýnt að hún er ekki orðheldin. Auk þess […]

Úlfar Þormóðsson 13/11/2017 Meira →
Fánaberar siðmenningar

Fánaberar siðmenningar

Það er óvissutíð. Þetta vita djörfustu hugsuðir. Og það jafnframt að þá er þörf á góðum ábendingum og traustri leiðsögn. Og sem betur fer láta vitringarnir svo lítið að upplýsa okkur hin um stöðu þeirra mála sem eru í algerri óvissu. Einn slíkur, ráðherra Hrunstjórnarinnar, Björn Bjarnason skrifaði leiftrandi fyndna grein á bjorn.is þann 10. […]

Úlfar Þormóðsson 12/11/2017 Meira →
Kollhnís

Kollhnís

Morgunblaðið leggur nú allt kapp á að gera lítið úr stjórnmálahæfileikum Katrínar Jakobsdóttur. Í leiðara segir að innan þingflokks VG séu uppi efasemdir um að “formaðurinn, Katrín Jakobsdóttir, væri ekki sá alvöru stjórnmálamaður sem margir telja að hún sé.” Og Staksteinar taka eftir Styrmi Gunnarssyni að heimildir hermi “að efasemdir séu að vakna innan VG […]

Úlfar Þormóðsson 07/11/2017 Meira →
Hættið að skipta við Skeljung!

Hættið að skipta við Skeljung!

Bjargvættir mínir voru sviptir vinnunni. Græðgiskarl lagði til að fyrirtækið sem þeir unnu hjá fengi hagræðingarkast, sem varð til þess að 29 manns var sagt upp störfum. Að því búnu hirtu gróðapungarnir 200 miljóna hagnað úr sjóðum fyrirtækisins, hagnað sem bjargvættir mínir, bensín-dælu-karlarnir áttu sinn þátt í að skapa. Bjargvættir unnu hjá Skeljungi í Öskjuhlíð. […]

Úlfar Þormóðsson 02/11/2017 Meira →
Baráttan um Ísland

Baráttan um Ísland

Það styttist í kosningar. Í þessari snörpu kosningabaráttu hefur verið tekist á um ýmislegt. Fólk, fréttaflutning, gífuryrði, fjölmiðla og staðreyndir en furðulítið talað um málefnin. Samkvæmt kosningaloforðunum virðast flestir flokkar sammála þeim ríflega 86.000 landsmönnum sem skrifuðu undir áskorun Kára Stefánssonar um endurreisn heilbrigðiskerfisins. Þrír þeirra voru reyndar nýbúnir að leggja fram fjárlagafrumvarp sem var […]

Margrét Tryggvadóttir 27/10/2017 Meira →
Gjafarinn allra góðra hluta

Gjafarinn allra góðra hluta

Sigmundur Davíð keppist við að telja kjósendum trú um að hann sé djúpvitur peningamaður sem hafi fengið að kenna á meðulunum vegna visku sinnar og öfundar skussanna. Nú vill hann að við vitum að hann er líka gjöfullt góðmenni. Því til sannindamerkis ætlar hann að taka þriðjungs eignarhlut ríksins í Arion banka og afhenda hverjum […]

Úlfar Þormóðsson 24/10/2017 Meira →
Hvaða máli skiptir ný stjórnarskrá?

Hvaða máli skiptir ný stjórnarskrá?

Ég á mér draum. Ég vil meira lýð­ræði, mann­eskju­legra sam­fé­lag, rétt­læti, heið­ar­leika, virð­ingu og ábyrgð. Ég vil að þjóðin fái arð­inn af auð­lind­unum sínum. Eftir hrun var farið var í margvís­leg verk­efni sem áttu að skapa betra sam­fé­lag. Skýrasta dæmið var ný stjórn­ar­skrá, samin af þjóð­inni í einstöku ferli sem vakið hefur verðskuld­aða athygli víða […]

Margrét Tryggvadóttir 23/10/2017 Meira →
Forsetinn veitir undanþágur frá lögum …

Forsetinn veitir undanþágur frá lögum …

Í dag er 20. október 2017. Fimm ár eru liðin síðan haldin var þjóðaratkvæðagreiðsla um frumvarp stjórnlagaráðs þar sem mikill meirihluti kjósenda samþykkti að vinna stjórnlagaráðs yrði grunnur að nýjum stjórnlögum. Það er óþarfi að rekja ferlið, það hefur vakið heimsathygli enda þátttaka almennings tryggð á öllum stigum máls. Engu að síður hefur lítið gerst […]

Margrét Tryggvadóttir 20/10/2017 Meira →
Skattpíning

Skattpíning

Þeir eru allmargir sem trúa Mogganum. Ennþá. Nokkrir trúa hugmyndafræðingi hans og Sjálfstæðisflokksins, Birni Bjarnasyni. Allir þessir trúa lágmiðlum á borð við Andríki. Þeir sem hér hafa verið tilteknir syngja einum rómi um glæpsamlegar áætlanir Vg um skattahækkanir komist vinstri stjórn, undir foræsti Katrínar Jakobsdóttur, til valda eftir kosningar. Þær skattahækkanir muni valda verðbólgu, atvinnuleysi […]

Úlfar Þormóðsson 20/10/2017 Meira →
Að éta sjálfan sig

Að éta sjálfan sig

Ástandið í Sjálfstæðisflokknum er engu líkt þessa dagana. Sjálfseyðingarhvötin er allsráðandi. Morgunblaðinu er ætlað að rétta hlut flokksins. Í þeim tilgangi var það borið í hvert hús í morgun, 19.10.´17. Á öllum blaðsíðum þar sem ritstjórarnir skrifa um pólitík, flokkinn og frambjóðendur má hverjum upplýstum lesanda vera ljóst að þarna er ekki boðlegur málflutningur. Og hrindir […]

Úlfar Þormóðsson 19/10/2017 Meira →
Sjálfstæðisflokkurinn ræðst gegn málfrelsi

Sjálfstæðisflokkurinn ræðst gegn málfrelsi

Sjálfstæðismenn hafa magnað upp gjörningaveður gegn sjálfum sér og flokknum. Þeir hrekjast fyrir vindi, hrata um hverja þústina af annarri og finna ekki skjól. Um helgina komst upp um hug eins þingmanns flokksins og aðal hugmyndafræðings til innflytjenda. Þar var mikið svartnætti. Í morgun falsaði hinn nafnlausi leiðarahöfundur Morgunblaðsins eigin skrif. Í leiðaranum stendur: “Vinstri […]

Úlfar Þormóðsson 16/10/2017 Meira →
Flokkur fellur saman

Flokkur fellur saman

Maðkarnir smjúga um innviði Sjálfstæðisflokksins. Frambjóðandi flokksins í Suðurkjördæmi, Geirjón lögreglumaður ætlar hvorki að kjósa sjálfan sig né flokkinn til þings vegna óánægju með embættisfærslu dómsmálaráðherra. Almennir kjósendur í því sama kjördæmi ætla að sammælast um það með nokkrum þingmönnum flokksins að strika yfir nafn frambjóðandans Ásmundar Friðrikssonar, sem skipar annað sæti á lista flokksins. […]

Úlfar Þormóðsson 15/10/2017 Meira →
1,866