Efst á baugi

Hvar er byssan mín?
Það er áreiðanlega ósatt að Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra leiki sér að tindátum með völdum mönnum úr Varðbergi. Hitt er satt að Björn vill láta líta svo út að hann sé afar fróður um stríð og frið, her og Herrann sjálfan. Til þess að viðhalda þessari ímynd skrifar hann reglulega um þessi efni. Í miðopnu […]

Ómæli
Hvað sem menn vilja segja um Moggann verður því ekki á móti mælt að yfirleitt er hann skrifaður á góðri íslensku.. Þess vegna hefur sjálfsagt mörgum brugðið í brún sem lásu þetta á mbl.is í morgun, 23.08.´17: Þróttmeiri spurn eftir vinnuafli “Þrátt fyrir að atvinnuþátttaka á öðrum ársfjórðungi hafi verið lægri en á fjórðungnum […]

Nafnleysinginn
Flestir ganga að því sem gefnu að Davíð Oddson sé sá sem skrifar ómerkta leiðara Morgunblaðsins, Staksteina og Reykjavíkurbréf. En það er samt allsendis óvíst. Það er annar ritstjóri að blaðinu, Haraldur Johannessen. Eitthvað skrifar hann. Og svo laumupennarnir úti í bæ, sem áður fyrr hétu einu nafni “húsmóðir í vesturbænum” og skrifuðu jöfnum höndum […]

Óvitar
Það getur verið óþægilegt, jafnvel mjög vont, að vita of mikið um einstök mál. Þetta þekkja að minnsta kosti fjórir fulltrúar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd alþingis. Þess vegna gengu þeir af fundi þegar upplýsa átti hverjir væru hinir valinkunnu sæmdarmenn sem ábyrgðust fyrir sinn hatt, að dæmdur barnaníðingur ætti skilið að fá uppreisn æru. Þeir […]

Mothertongue – Muttersprache – Móðurmál
Björn Bjarnason, fyrrverandi menntamálaráðherra segir frá því í pistli í dag, 15. ágúst, að þýskur þingmaður, Jens Spahn hafi verið spurður af því af blaðamanni hvort hann mundi beita sér fyrir því á þýska þinginu að virkja þingmenn til að halda fram hlut þýskunnar af meiri þunga en nú væri gert, en þýska mun vera […]

Kæra Björt,
Opið bréf til umhverfisráðherra, Bjartrar Ólafsdóttur Kæra Björt, Mikið fannst mér leitt að sjá umfjöllun um þig í Fréttablaðinu og Vísi í dag þar sem greint er frá því að þú hafir verið að auglýsa kjól fyrir vinkonu þína og fyritæki sem hún vinnur hjá á Instagram með því að klæðast kjólnum í þingsal fyrir myndatökuna. […]

SKOTTÚR
Við höfum haft marga ráðherra. Hæfa og vanhæfa, hvern með sínu laginu. Þar á meðal orðhaga oflátunga og málstola menn, marga hverja þrúgaða af minnimáttarkend. Oft hefur verið erfitt að búa við þá og reyndar ógerlegt á stundum ef það væri ekki augljóst að það er óumflýjanlegt gjald fyrir lýðræði. Nýverið lýsti einn ráðherra því […]

Ríkið seilist niður fyrir skattleysismörk
Þegar lífeyrissjóðirnir greiða út lífeyri til ellilífeyrisþega og öryrkja er tæpega 37% staðgreiðsluskattur dreginn frá upphæðinni. Þetta er sama skatthlutfall og af almennum launum og virðist fljótt á litið alveg eðlilegt, þar eð skattur var ekki innheimtur af þessum peningum þegar þeir voru greiddir inn í lífeyrissjóðina. En málið er ekki alveg svona einfalt. Í […]

Siglt er hátt, en lágt er lotið.
Tveir helstu hugsuðir Sjálfstæðisflokksins, Björn Bjarnason, formaður Varðbergs, og Styrmir Gunnarsson, fyrrum ritstjóri flokksmálgagnsins eru, hvor í sínu bóli, búnir að átta sig á hvað á að verða aðal mál flokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor. Björn hefur skrifað nokkrar greinar um málið. Styrmir eina. Hún birtist á sunnudaginn 23. júlí. Þetta er úr henni, feita […]

Úrtölukórinn
Það bætast sífellt nýjar raddir í kórinn. Margradda kórinn sem syngur um bölmóðinn og hefur gert vikum, mánuðum og árum saman. Samkór úrtölusöngvara. Nýjasti söngvasveinn er hótelhaldari. Hann hefur áður sungið í kvintett með meirihluta bæjarstjórnar í sinni heimabyggð. Hann söng byggðina á hausinn. Það var fyrir áratug eða svo. Hún er enn á hausnum, […]

lofið dagsins þreytta barni að sofa
Sem heilbrigðisráðherra vann Kristján Þór Júlíusson mikið starf við leit að leiðum til að einkavæða heilbrigðiskerfið. Hann þurfti því eðlilega að hvíla sig. Oft og mikið. Í vinnutíma og utan hans. Og varð þjóðkunnur fyrir djúpan svefn og langan á stundum. Svo hrökklaðist ríkisstjórnin sem hann sat í frá völdum, nýrri var hróflað upp, ekkert […]

Litlu börnin leika sér
Nú eru góðir dagar hjá hræddu köllunum á Varðbergi. Nató-herinn er nýbúinn að fljúga um lofthelgina og hreinsa hana af óværu, sjóherinn er enn að æfa skotfimi við strendurnar og stýra nýjustu gerð af kafbátaleitartækjum í leit að óvinum við strendur landsins. Þeir þekkja hann nefnilega, óvininn, hræddu kallarnir. Það er frjálshyggjurússinn, Hann er óútreiknanlegur […]