Efst á baugi
Þjóðhátíðarsnoppungur
„Við stöndum hér á Austurvelli undir vökulu augliti þeirra Ingibjargar H. Bjarnason og Jóns Sigurðssonar,“ sagði forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson úr ræðupúlti á Austurvelli og vísaði til standmynda með stjörf augu steypt í eir. Ræða hans var hvorki skáldleg né skörugleg. En hún var frumframsóknarleg ef svo má að orði komast; þunglamaleg eins og þreyttur […]
Ósvífin samlíking
Sigurður Einarsson fyrrum stjórnarformaður Kaupþings líkir meðferðinni á sér og fleiri sakborningum í hrunmálum við framkomu lögreglu og dómsvalds í Guðmundar- og Geirfinnsmálum fyrir fjórum áratugum. Það er erfitt að finna fáránlegri samlíkingu en einmitt þessa. Hvorki Sigurður né aðrir, sem dæmdir voru í kjölfar hrunsins sættu stöðugri einangrunarvist í heilsuspillandi fangelsi árum saman. Þeir […]
Endurskoðun
Lífeyrissjóðir eru sparisjóðir launamanna. Til þess ætlaðir að fólk fái greiðslur úr þeim í veikindum, við slys og starfslok. Nú er svo komið að starfsmenn lífeyrissjóða eru með margföld laun þeirra sem þeir starfa fyrir og í sjóðina greiða. Dæmi eru um að sjóðstjórarnir hafi allt að tólffalt hærri laun en þeir sem mánaðarlega leggja fé […]
Fín upprifjun og góð blaðamennska
Það reyndist furðu margt hafa gleymst á fjórum árum, þegar ég las nýútkomna bók Karls Th. Birgissonar Alltaf einn á vaktinni. Þykist ég þó yfirleitt fylgjast nokkuð vel með því sem gerist í kosningabaráttu. Og fáein atriði komu á óvart. Þarna birtist t.d. allt í einu dálítil skýring á þeirri spádómsgáfu Ólafs Þ. Harðarsonar, sem […]
Davíð: Annaðhvort með eða á móti
Davíð Oddsson sker sig áberandi úr hópi forsetaframbjóðenda að því leyti að afstaða kjósenda til hans virðist alveg á hreinu frá upphafi og verður sennilega til enda. Fólk er annaðhvort með honum eða á móti. Andstaðan gegn Davíð sést nokkuð skýrt á harkalegum viðbrögðum margra t.d. á Facebook. Sumir láta sér nægja háðsglósur, en aðrir […]
Brókaskipti
Nú í vikunni var nýr skólastjóri ráðinn af menntamálaráðherra til starfa í Borgarholtsskóla. Með hvaða hætti einn var metinn hæfari til starfans en annars er ekki á almannavitorði. Þegar umsóknarfrestur um stöðuna var úti kom í ljós að meðal umsækjanda var maður sem unnið hefur náið fyrir menntamálaráðherra og með honum. Sá hlaut ekki náð […]
Fórnarlambið
Framsóknarmenn héldu miðstjórnarfund í gær (04.06.´16). Hann var víst ánægjulegur og samtaða mikil. Formaður flokksins mætti endurnærður eftir nokkurra vikna frí. Hann hélt langa ræður, talaði um fjármál sín og upplýsti með skrauthvörfum að allt Panamaskjalamálið væri tilbúningur mannorðsmorðingja sem hugðust slátra honum til þess að koma höggi á flokkinn. Framsóknarflokkinn. Fyrir þessar einlægu upplýsingar […]
Nýstárleg neytendavernd: Bókin fæst endurgreidd ef hún er leiðinleg – Ólafur Ragnar er ekki nógu sexí
Útgefandi bókar Karls Th. Birgissonar um forsetakjörið 2012 býðst til að endurgreiða kaupverðið ef bókin reynist vera leiðinleg.
Krónustýring
Það er alkunna að tekjulágt fólk leiti ekki til læknis af því að það hefur ekki efni á því. Mörgum þykir að ekki sé hægt að una við það í jafn ríku samfélagi og við búum í. Þess vegna hafa stjórnmálamenn á vinstri vængnum rætt um að fella niður komugjöld einstaklinga í heilbrigðiskerfinu og fjármagna […]
Gæfusmíði
Það er upplífgandi að verða hissa. Það er eins og mann kítli örlítið í innyflin. Hér kemur örstutt samantekt sem gæti vakið undrun og forvitnilegar spurningar. Þann 7. september 2011 var félagið Caramba-hugmyndir og orð ehf. tekið til gjaldþrotaskipta samkvæmt frétt í Viðskiptablaðinu. Það fylgdi og að hæstu skuldirnar hafi verið á Björn Inga Hrafnsson […]
Tortryggni
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), formaður Framsóknarflokksins var ekki fyrr kominn til starfa eftir fjögurra vikna frí en hann hóf að efna til ófriðar; sagði taugaveiklunarsögu af forsetanum og tilkynnti að það væri engin ástæða til þess að kjósa til þings í haust þrátt fyrir að samkomulag hafði þá nýlega náðst um að svo skyldi gert. […]
Ofvæni
Það er spenna í lofti, eftirvænting. Það er von. Og margir um hana: Það gæti verið hægt að hreinsa til á samfélagstindunum fyrir árslok. Það á að kjósa forseta og nýtt þing. Það sem vekur vonina er að í báðum kosningum mun kjósendum standa til boða að velja á milli fortíðar og framtíðar. Í hópi […]



