trusted online casino malaysia

Efst á baugi

Munaðarleysingjar

Munaðarleysingjar

Fjölskylduharmleikur var fluttur í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkveldi (18.05.´16). Úrdráttur úr honum birtist í blöðum og öðrum fjölmiðlum í dag og aukið í. Orsakir hörmunganna eru deilur um týnda peninga, um horfinn arf. Í fjölmiðlum er aftur og aftur skýrt frá því að hinn umdeildi auður hafi orðið til vegna kommisjónar, umboðslauna, sem fjölskyldufaðirinn, heildsali, […]

Úlfar Þormóðsson 19/05/2016 Meira →
Dellumakarar

Dellumakarar

Að venju skrifar nafnleysingi leiðara Morgunblaðsins þennan daginn (17.05.´16). Textarýnendur telja sig þekkja prófessor Hannes Hólmstein af orðfærinu. Leiðarinn á að vera til styrktar forsetaframbjóðandanum Davíð Oddssyni. Í Moggablogginu rægja landsþekktir dellumakarar einn meðframjóðanda Davíðs til forsetaembættis, Guðna Th. Jóhannesson. Þar í flokki eru Jón Val Jensson, Gústaf Adolf Skúlason og Pál Vilhjálmsson. Einn dellumakarinn, […]

Úlfar Þormóðsson 17/05/2016 Meira →
Afturgöngur

Afturgöngur

Siggi á efstu hæð sló oftar en ekki í gegn í gleðskap. Hann var orðheppinn sögumaður sem hafði þann háttinn á að yfirgefa samkvæmi þegar honum hafði tekist vel upp og hæst lét í gestunum. En hann átti það til að ofmeta sjálfan sig. Ofmatinu fylgdi dómgreindarbrestur sem varð til þess að hann kom aftur […]

Úlfar Þormóðsson 11/05/2016 Meira →
Það er kúkur í lauginni

Það er kúkur í lauginni

Það er ekki oft sem náttúruverndarsinnum hefur gefist kostur á að gleðjast yfir orðum Jóns Gunnarssonar, alþingismanns. Það bar þó til í fréttum Stöðvar 2 nú í köld (06.05.´16) að orð hans um verndun Mývatns voru gleðiboðskapur. Eins og kunnugt er hefur lífríki Mývatns orðið fyrir verulegum skaða undangengin ár. Merki um það er hvarf kúluskíts, […]

Úlfar Þormóðsson 06/05/2016 Meira →
Útsala

Útsala

Það getur verið fjandanum erfiðara að segja satt. Margir sem hlustuðum á forsetann (ÓRG) lýsa því yfir í beinni útsendingu að hann yrði að vera forseti næstu fjögur árin að minnsta kosti, vegna óróa í samfélaginu, fengu á tilinninguna að hann væri ekki að segja satt; hann bara langaði til þess að vera forseti áfram […]

Úlfar Þormóðsson 30/04/2016 Meira →
Heilsubót

Heilsubót

Ég hlustaði á viðtal við Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðanda í gær en veit svo sem ekki hversu miklu ég á að trúa af því sem ég heyrði. Það greiðist væntanlega úr því síðar. Fyrir þá sem vilja hlýða á það er slóðin þessi: http://www.visir.is/section/MEDIA98&fileid=CLP45077 En svo sá ég úrdrátt úr viðtali sem tekið var við Gylfa […]

Úlfar Þormóðsson 28/04/2016 Meira →
Skuggahliðar menningarinnar.

Skuggahliðar menningarinnar.

Eimreiðin 1. sept. 1910 Þorvaldur Thoroddsen. Skuggahliðar menningarinnar. Öfgastefnur :   „Þess hefir fyrr verið getið, að vísindin fyrir lok 19. aldar sýndust í margra augum komin að takmarki sínu, þau virtust hafa fundið samræmi allra náttúrlegra fyrirbrigða, eining í efni og öflum alheimsins; sérhverjum hlut lifandi og dauðrar náttúru var skipað í sæti sitt […]

Guðmundur Gunnarsson 26/04/2016 Meira →
That´s not the case

That´s not the case

Forsætisráðherrann hefur lýst því yfir að það sé flókið og erfitt að eiga peninga á Íslandi. Orð hans ber þó ekki að oftúlka. Að öllu líkindum er hann hvorki að meina að það sé betra að vera blankur hérlendis en með fulla vasa fjár né að það sé snöggtum skárra að eiga pening í útlöndum […]

Úlfar Þormóðsson 26/04/2016 Meira →
Fasismi er fasismi, hverju sem hann klæðist

Fasismi er fasismi, hverju sem hann klæðist

Fasismi er ekki fúkyrði, heldur pólitískt hugtak sem lýsir tilteknum stjórnmálaskoðunum.

Ritstjóri Herðubreiðar 25/04/2016 Meira →

Glugginn er galopinn

Í kvöld heldur Kastljósið áfram að fjalla um Panama-skjölin. Mig langar að deila með ykkur hvernig mér leið fyrir rétt um þremur vikum þegar Kastljós sýndi wintris-þáttinn. Við vorum sennilega öll að horfa. Mér leið illa Ég var sorgmædd. Sjokkeruð, reið og ég trúði þessu varla. Mér var óglatt. En skömmin yfir þessu öllu saman var […]

Margrét Tryggvadóttir 25/04/2016 Meira →
Fasismi er það og fasismi skal það heita

Fasismi er það og fasismi skal það heita

Ég bý í lýðræðisþjóðfélagi. Það er gott. Það þýðir að ég má – ef ég vil – stofna stjórnmálaflokk. Ég má kalla hann einhverju fallegu og lýsandi nafni eins og „Breiðfylking hinnar sveltandi alþýðu“ og hafa alræði öreiganna og samyrkjubúskap á stefnuskránni. Þetta má ég. Það sem ég má ekki er að gera þetta og […]

Davíð Þór Jónsson 25/04/2016 Meira →
Manndómur

Manndómur

Kári Arnór Kárason, framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins Stapa tengist tveimur aflandsfélögum sem frá er sagt í Panamaskýrslunni. Annað þeirra stofnaði hann í Lúxembúrg, fyrir Kaupþing. Það starfaði í þrjú ár, eftir því sem Kári Arnór segir í yfirlýsingu. Samkvæmt sömu yfirlýsingu lagði Kári Arnór hvorki fé til þessa félags né fékk pening greiddan úr því. Síðan segir í […]

Úlfar Þormóðsson 23/04/2016 Meira →
1,382