Efst á baugi
Listamannalaun eða hafnargarðurinn?
Nú stendur yfir hið árlega fárviðri vegna úthlutunar listamannalauna. Hið opinbera, sem þriðjungur allra starfandi landsmanna vinnur hjá, hefur sem sagt ákveðið að veita nokkrum listamönnum verkefnastyrki í nokkra mánuði. Um er að ræða verktakagreiðslur og þurfa listamennirnir sjálfir að standa skil á opinberum gjöldum, greiða sér orlof og veikindadaga og borga tryggingargjald svo aðrir geti fengið […]
Á hverju er forsætisráðherra undrandi? Kjararáð starfar eftir lögum hans og reglum
Forsætisráðherra segist furða sig á hækkunum hæstu launa sem kjararáð hefur úrskurðað um.
Er Ísland að guggna á stuðningi sínum við alþjóðalög? Freki kallinn sækir í sig veðrið
Ísland hefur líklega tekið þátt í yfir hundrað viðskiptaþvingunum af ýmsu tagi, að sögn forsætisráðherra.
Embættismaður með köllun
Það heyrir til undantekninga að embættismenn taki landa sína á beinið. Hvað þá að þeir hafi burði til þess. En landlæknir hefur merg í beinum og tilkynnti okkur það í Útvarpinu í gær (05.01.´16) að heilbrigðiskerfið hefði verið rekið á rangan hátt síðustu tvo áratugina, peningarnir sem í það fara séu ekki nýttir sem skyldi […]
Nöldrari ársins
Ég segi enn: ég er sífellt að reyna að láta mér líka vel við forsætisráðherrann. Ég reyni ítrekað að lesa eitthvað jákvætt út úr skrifum hans, hlusta eftir vitrænni framtíðarsýn þegar hann talar. Í þeim tilgangi las ég áramótagrein hans í Morgunblaðinu, sem útgerðarmenn settu óbeðnir inn um póstlúguna hjá mér. Þar segir hann, fyrirliði […]
Múslimisti ársins og leigjandi ársins
Samkvæmt hefð velja lesendur Herðubreiðar afreksmann ársins í stjórnmálum. Hér er topp tíu listinn.
Pírati hvetur til kurteisi og betri umræðu. Talar sjálfur um fávita, rætna drullu og siðlaus fífl
Við verðum að breyta umræðuhefðinni, er niðurstaða greinar sem einn stofnenda Pírata, Smári McCarthy, skrifar í Stundina í dag.
Tvískinnungur
Tvískinnungur einkenndi orð og gerðir fyrirmanna á árinu sem er að líða. Forsetinn talar. Fólkið heldur sig skilja hann og skrifar og ræðir um orð hans. Þegar þar er komið sendir hann gjarnan frá sér yfirlýsingu þar sem segir að ekki hafi verið rétt eftir honum haft eða að hann hafa ekki meint þetta sem […]
Góðar stundir
Í sólarleysi morgunsins barst mér tölvuskeyti austan af fjörðum og finnst að það eigi einnig erindi við aðra. „Eitt sinn þegar ég er um 10 ára þá spurði ég móður mína: „Af hverju heldur þú jólin svona hátíðleg?“ Þarna var ég farin að gera mér grein fyrir að hún var hvorki kirkjurækin né troðandi inná […]
Sjónhverfing við sólhvörf
Jón Sigurðsson stóð við hliðina á mér á meðan ég reykti. Ég hugsaði um skammdegið. Við horfðum báðir til sömu áttar. Með skakka auganu sá ég pelsklædda konu nálgast. Mér sýndist þetta vera Vigdís Hauksdóttir og fór að hugsa um Viðskiptaráð. Samkvæmt því sem segir á heimasíðu þess er megintilgangur ráðsins að gæta hagsmuna viðskiptalífsins, […]
Víðvarpsamma les fyrir börnin
Ég hef undanfarin 20 ár staðið í pistlagerð á netinu. Oftast hef ég sett saman einhverskonar jólapistil. Í tilefni afmælis RÚV ákvað ég að jólapistill þessa árs væri samantekt nokkra punkta úr óbirtu handriti mínu um þróun rafiðnaðargreina og stéttarfélaga rafiðnaðarmanna. Markmiðið er að draga upp mynd af innleiðingu þeirrar tækniþróunar sem á örskömmum tíma […]
… ég afnem argaþras
… það er alveg sama hvernig þeir hamast … hvern þeir senda á mig … ég slæ þá alla út … sjáiði kára til dæmis … hann óð fram með hótunum og illyrðum og sagði að ég vildi eyðileggja landspítalanum … þá lét ég bjarna sletta nokkrum miljónum í hræið áður en við stígum næsta […]



