Efst á baugi
Ritstjóri Herðubreiðar: Hættum að blekkja börnin okkar. Í dag eru hin raunverulegu jól
Jesús fæddist ekki 24. desember. Þau ósannindi, sem kirkjan ætlast til þess að börnin okkar trúi, eru hættulegri en trúin á jólasveinana.
Á hverju eru þeir?
Landsspítalann vantar 3 miljarða til þess að endar nái saman í rekstrinum á ári komanda. Ríkisstjórnin ætlar að láta hann hafa 1 miljarð. Það fé á að nota til þess að flytja fólk af göngum spítalans og „eitthvað annað“ og 250 milljónir að auki til þess að laga lekann á Grensásdeild og lappa upp á […]
Lágkúra formanns fjárlaganefndar
„Við í fjárlaganefnd lýsum ábyrgð á hendur verkalýðshreyfingarinnar yfir því hversu lág launin eru hér í landinu. Það er forystu verkalýðshreyfingarinnar að kenna að hér á landi eru um 10% vinnufærra manna skráðir öryrkjar“ segir formaður fjárlaganefndar í umræðum á Alþingi og var aðalfréttin núna áðan (RÚV kl. 16:02 18.12.15). Hér lýsa umræddir […]
Stóriðja eða skapandi listgreinar
Ágúst Einarsson prófessor og fyrrv.rektor Háskólans í Bifröst hefur rannsakað hagræn áhrif skapandi lista á landsframleiðslu Íslands síðasta áratug. Velta skapandi greina nemur á þriðja milljarð króna á ári og er skapa hér á landi yfir 10.000 störf. Hlutur menningar og lista í landsframleiðslu hafa vaxið mikið frá Hruni og er í dag að […]
Stóryrtir náttúruverndarsinnar
Umsýsla vegna aukinnar ferðamennsku er orðin langstærsti atvinnuvegurinn hér á landi. Forsenda þess er aðdráttarafl íslenskra náttúruperlna sem hafa dregið til sín umtalsverðan fjölda ferðamanna og skapað amk 7000 störf á undanförnum árum. Það stefnir í það á næstu árum að hún muni skapa meiri gjaldeyristekjur en öll stóriðjan og útgerðin samanlagt. Þrátt fyrir þetta berst ríkisstjórnin […]
Afvegleiðarinn
Á þeim árum sem Morgunblaðið kom við á 80% heimila landsins trúði fólk á helmingi þeirra því sem í blaðinu stóð og kaus Sjálfstæðisflokkinn. Lykillinn að velgengni blaðsins í áróðri var að þegja yfir þeim skoðunum sem ekki nutu velvildar flokksforystunnar. Ef það neyddist til þess að segja frá þeim, einhverra hluta vegna, var það […]
Dólgur
Samkvæmt íslensku samheitaorðabókinni merkir nafnorðið dólgur groddi, ribbaldi, rosamenni; tröllkarl; draugur. Í Orðabók Menningarsjóðs er kvenkynsorðið sýndarmennska skilgreint sem yfirborðsmennska, sá háttur að reyna að sýnast meiri eða betri en maður er. 000 Guðlaugur Þór Þórðarson var annar tveggja alþingismanna í Kastljósi kvöldsins (15.12.´15). Ætlun þáttarstjórnanda var að ræða fjárlögin, einkum fjárþörf heilbrigðiskerfisins. Ég hafði ekki stóra von um […]
Úlfakreppa
Það er þrengt að Ríkisútvarpinu. Sá sem nú stendur þversum og veldur úlfakreppu er forsætisráðherra. Hann neitar að veita Útvarpinu það fé sem það þarf til þess að það verði áfram sú yfirburðar menningarstofnun sem það er og hefur verið. Samkvæmt fréttum innan úr trúnaðarmannaráði Sjálfstæðisflokksins stóð til að gera breytingu á ríkisstjórninni um áramót. Það […]
Hógværðin
Mogginn í dag, 12.12.2015, skýrir frá því að ríkisstjórnin hafi af rausn sinni veitt mæðrastyrksnefndum á Akureyri, Hafnarfirði, Kópavogi og á vesturlandi 0,8 miljón króna styrk hverri nefnd „í tilefni jóla“. Hjálpræðisherinn fékk einnig sömu krónutölu til ráðstöfunar af sama tilefni. Blaðinu láðist að greina frá því að sama stjórn hafði skömmu áður samþykkt að veita […]
Gælur og gyllinæði
Ráðherrar hafa að undanförnu verið að reyta af sér misskýr svör við spurningum Katrínar Jakobsdóttur um útgjöld þeirra vegna sérfræði-, ráðgjafar- og kynningarstarfa. Eygló Harðardóttir svaraði óvenju skilmerkilega og skýrði frá því að Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi ráðherra Framsóknarflokksins hafi fengið tæpar tuttugu milljónir króna frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu fyrir aðstoð vegna norræns samstarfs, formennsku Íslands […]
Upphafning glópskunnar
Grundvöllur við útreikninga þjóðhagsstærða er rangur. Það sýnir og sannar sá mismunur sem jafnan er á spám bankanna og raunveruleikanum. Eigi að síður er haldið áfram að reikna eftir sömu vitlausu aðferðinni ár eftir ár. Fjölmiðlar birta niðurstöður og villuspár bankanna athugasemdalaust af ótta við að missa tekjur af hinum væmnu stórauglýsingum þeirra um afrek […]
Altíð
„Því miður verður að játa og viðurkenna að hugsjónir fullnægja aldrei almenningi – hinum fjölmenna múg sem horfir ekki til annars en almennrar velferðar. Meðalmennið krefst þess að hatrið fái notið réttar síns við hlið óbeislaðrar ástarnautnar og hver og einn heimtar að sérhver hugsjón komi honum fljótt og örugglega að persónulegu gagni. Ævinlega er […]



