Efst á baugi
Sæmd
Af og til verður fólskan svo yfirgengileg að manninn setur hljóðan. Þannig háttar um þann fautaskap sem beitt var í París nú í vikunni. Sem betur fer hefur einstaka mönnum tekist að fjalla um Parísarmorðin af skarpskyggni og bent á hið augljósa sem gjarnan hverfur svo mörgum í andartaks vanmáttarreiði: Látum fólsku annarra hvorki leiða […]
Höldum áfram að vera „góða fólkið“. Líklegra að við deyjum úr þunglyndi en látum lífið í hryðjuverkaárás
Við erum slegin, við erum hrædd. Til þess er leikurinn gerður. Á svona stundum er nauðsynlegt að halda fókus og muna.
#TeamGóðafólkið
Við erum slegin, við erum hrædd. Til þess er leikurinn gerður. Á svona stundum er nauðsynlegt að halda fókus og muna: Trúarbrögð valda ekki hryðuverkum, öfgar og illska gera það. Flóttamenn eru ekki vandinn. Þeir sem nú leggja líf sitt að veði til að komast til öruggari landa eru einmitt að flýja voðaverk af því tagi […]
París, rúmlega 2.300 árum síðar
París dregur heiti sitt af keltneskum þjóðflokki, Parísum, sem Rómverjar kölluðu parisii. Þeir settust þar að á þriðju öld fyrir okkar tímatal.
Ljósberinn
Það er dásamlegt að komast að því hvar þekkingin býr. Og geta leitað eftir henni. Þar getum við vitleysingjarnir sótt kjark til þess að lifa gleðilegu lífi með vissuna og vitið að leiðarljósi: Ljósberi gærdagsins var Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður og ráðgjafi forsætisráðherra. Hann birtist okkur í fréttum Stöðvar 2 þegar verið var að segja […]
Afréttari
Ásdís Halla Bragadóttir er stjórnarformaður fyrirtækis í heilbrigðisþjónustu sem rekur heilsuhótel. Hún kvartar undan því að umræða um einkarekstur í heilbrigðisþjónustunni sé ómálefnaleg, jafnvel andstyggileg. Vefmiðillinn Eyjan hefur eftir henni að „sumir kjósi að taka út einstaklinga og einblína á að þeir séu að græða í þeim tilgangi að gera starfsemina ómálefnalega“, hver svo sem […]
Í drottins nafni og 40
Eins og flestir vita er hægt að reikna eitt og sama dæmið með ólíkum aðferðum og fá breytilega útkomu. Þessa dagana dundar eftirlaunaklerkurinn Þórir Stephensen sér við að reikna út hversu mikið ríkissjóður leggi til „þjóðkirkjunnar“. Hann sleppir launum presta upp á 1 miljarð 507,6 miljónir, sem greidd eru úr ríkissjóði, einnig greiðslum í jöfnunarsjóð […]
Hundadagar
Það tekur nokkrar blaðsíður að venjast, já eða jafnvel sætta sig við það frásagnarform sem Einar Már beitir í Hundadögum. Það leikandi léttur blær og leiftrandi hugmyndaríki sem ræður hér ríkjum. Það er eins og Einar Már sitji við rúmstokkinn og sé að segja manni sögur og frásagnargleðin ræður þar ríkjum. Einar Már tengir saman í bókinni […]
Can Iceland fuel Europe?
Eigum við að fórna náttúru Íslands? Miðhálendi Íslands er einn mesti fjársjóður landsins. Þar má finna stærsta ósnortna víðerni í Evrópu. Stórbrotnar landslagsheildir og náttúrufyrirbæri með eldfjöllum, jöklum, vatnsmiklum ám og fossum. Litrík háhitasvæði, víðfeðm hraun og svartar sandauðnir sem kallast á við viðkvæmar gróðurvinjar. Kraftarnir sem náttúruöflin leysa úr læðingi, þ.m.t. samspil elds og […]
Af fulltrúum skröksögunnar
Fjölmiðlahringurinn 365 var rekinn með miklu tapi á síðasta ári; í krónum talið. Mogginn tapar og tapar. Þó eru þessir fjölmiðlar í einkaeign; reknir samkvæmt bestu uppskrift frjálshyggjunnar. Og verða áfram. Þrátt fyrir tapið. Því er nefnilega þannig háttað að hagnaður af rekstri fjölmiðla fer ekki eftir því hversu miklu þeir skila inn á sparisjóðsbók […]
Jóhanna er kannski hætt, en þingið á eftir að klára síðasta málið hennar
Hvað eiga lögmenn, blaðamenn, endurskoðendur, kennarar, leiðsögumenn, félagsráðgjafar, dýralæknar, arkitektar, jarðfræðingar, Eimskip, Landsnet, Vegagerðin og íþróttafélagið Fram sameiginlegt?
Starfsmenn Landsvirkjunar og Samorku á villigötum
Ég var á fundi Rammaáætlunar í dag þar sem farið var verkefnin og vinnureglur. Í sal voru m.a. forsvarsmenn Landsvirkjunar og Samorku. Þeir létu störf Rammaætlunar fara í taugarnar á sér og nýttu tækifærið til þess að tala niður til fólks sem, „er á móti öllum virkjunum á hálendinu og kýs að verja öllum sínum frítíma í […]



