Efst á baugi
Byggingarkostnaður er ekki mesti vandinn. Vextirnir eru langstærsta vandamálið á húsnæðismarkaði
Kostnaður við að byggja hús ræður ekki mestu um það hvort ungt fólk getur fengið húsnæði á viðráðanlegum kjörum. Það gera hins vegar vextirnir.
Sjálfstæðisflokkurinn virðist vera hefðbundinn krataflokkur. Þangað til. (I)
Sjálfstæðisflokkurinn er yndislegur flokkur. Það leiða í ljós drög að ályktunum landsfundar hans. Þar stendur stétt með stétt. Eins og í gamla daga.
Nýr varaformaður í VG talinn myndu útiloka forsetaframboð Katrínar
Stór hópur fólks innan Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs hefur skorað á Daníel Hauk Arnarsson að gefa kost á sér til varaformennsku í flokknum á flokksþinginu um næstu helgi.
Dauðadans
Á borðplötu úti á þekju steig fiðrildi sinn dauðadans. Það fór í hringi. Af og til blakaði það vængjum, tókst ekki að hefja sig til flugs, reisti vængi og dansaði áfram. Á tölvunni er grein eftir Ásmund Einar Daðason, þingmann framsóknar, sem starfað hefur sem hugmyndasmiður forsætisráðherra. Í skrifum sínum fjallar þingmaðurinn um þau tíðindi […]
Íslenskri fjölskyldu vísað frá Noregi. Ástæðan? Hún var í leit að betra lífi
Íslenskri fjölskyldu var synjað um dvalarleyfi í Tromsö í Noregi þar eð sýnt þótti að fólkið væri einungis þangað komið í leit að betri lífskjörum.
Hugleiðingar um samningamál
Það er eðlilega mikið rætt um stöðu samningamála þessa dagana þegar enn eitt verkfallið hjá opinberum starfsmönnum er skollið á. Nokkuð er litið til þess að skipta um vinnumarkaðslíkan að norrænum hætti. En er þörf á slíku? Fyrst er að því að hyggja að varhugavert er að draga víðtækar ályktanir af ástandi sem er um […]
Engin skattsvik (Enn um örlátan söngvara)
Mér hefur borist til eyrna að pistill sem ég ritaði hér árla dags hafi verið túlkaður á þann veg að framin hafi verið skattsvik. Sú túlkun er fjarri öllu sanni. Ekkert í honum er þess efnis og ekkert tilefni til að ætla að skattalög hafi verið brotin. Skattskil kaupenda vegna tekna á þessu ári […]
Messíasarkomplex
Það er til aldagömul upplifun sem er nefnd messíasarkomplex í sálfræðinni. Hún lýsir sér í sjálfumglaðri sjálfsmynd einstaklings sem í bjargfastri trú setur fram einhvern sannleik sem öllum öðrum er hulinn. Trú á að hann og enginn annar geti bjargað tiltekinni þjóð frá glötun. Þetta er skylt upprisuheilkenninu sem birtist í endurkomu frelsarans. […]
Örláti söngvarinn
Sala Arionbanka á hlutabréfum í Símanum vekur athygli og spurningu um hvort hún sé merki um endurkomu fjármálasukks fyrri ára þegar ráðamenn fjármálafyrirtækja notuðu aðstöðu sína til að moka fé í vasa sína og vildarvina sinna með ýmsum hætti. Gleymdir eru gjörningar sem leiddu til áfellisdóma enda almennt talið að græðgi slævi skjótt minni þeirra sem […]
Gleðilæti í Svindlhöll Íslands
Í morgun var byrjað að selja hlutabréf í Símanum. Forstjóri Símans fékk að dingla bjöllukólfi í Kauphöllinni í tilefni dagsins. Forstjóri Kauphallarinnar var fullur af hátíðarkæti þegar hann ávarpaði viðstadda: „Síminn er sannarlega góð viðbót við hlutabréfamarkaðinn og styrkir bæði fjarskiptageirann á honum sem og markaðinn í heild sinni. Við hlökkum til að styðja við […]
Nýstárleg fullveldiskenning Framsóknar: Sumir mega nota lágvaxtagjaldmiðil. Hinir búa við vaxtaokur krónunnar
Í fullveldislögunum 1918 var sérstaklega tekið fram að Ísland skyldi vera áfram í alþjóðlegu myntsamstarfi.
Loddarar
Á dögunum datt ég inn í samtal á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Það var við fyrrverandi formann Bændasamtakanna sem nú situr á alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann var að segja frá því að Hótel Saga, sem er í eigu samtakanna, hafi verið öflugt fyrirtæki fyrir Hrun, en þá hafi komið bakvindur í rekstrarseglin. Hótelið hafði fengið lán hjá […]



