Efst á baugi
Sigmundur Davíð lofar vitaskuld nýrri „leiðréttingu“ fyrir næstu kosningar. Íslenska leiðin er tóm hringavitleysa
Verðbólgan færir fjármuni frá hinum efnaminni til hinna ríku. Það er hin sígilda leið til að láta íslensku krónuna „bjarga“ okkur.
Falsspámenn
Bankarnir eru með spádeildir. Þar starfa lærðir viðskipta- og hagfræðingar. Þeir hafa takmarkalítinn aðgang að blöðum, útvarpi og sjónvarpi þegar þeir flytja spádóma sína, sem undantekningarlaust er hvatning til bankasviðskipta af einhverri sort. Eitt af því sem þeir fást við er að gera þjóðhagsspár eitt, tvö, þrjú ár fram í tímann. Því er haldið að […]
Ólík sýn fjölmiðlamanna á samfélagið, sjö árum eftir Hrun
Tveir öflugir blaðamenn hafa birt yfirlitsgreinar um Ísland sjö árum eftir Hrun. Annar telur ekkert hafa breyst. Hinn mjög mikið.
Hugljómun
Það er löngu vitað að að ótrúlegasta fólk vaknar stundum til vitundar. Stöku sinnum lifir hugljómunin og elur af sér nýja hugsun og framfarir. Oftar er hún þó líkari neistaflugi; sindrar og deyr í einni og sömu andrá. Um helgina urðu að minnsta kosti þrír frammámenn fyrir vitundarleiftri. Fyrst skal fræga telja Vigdísi Hauksdóttur, formann fjárlaganefndar alþingis. […]
Auðmýkt
„Ég er kannski ekki búinn að ákveða mig,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson í þættinum Á Sprengisandi í morgun (11.10.´15) þegar hann var spurður að því hvort hann myndi bjóða sig fram til forseta á næsta ári. Vísir.is prentar upp úr viðtalinu. Hér eru nokkrar perlur úr því: „Við ræðum þetta, við Dorrit og fjölskyldan. Þetta […]
Ögmundur um stjórnarskrármálið: Það var verkstjórn Jóhönnu sem brást. Klúður og vanhugsuð vinnubrögð
Klúður og vanhugsuð vinnubrögð forsætisráðherra urðu til þess að ekki tókst að afgreiða breytingar á stjórnarskránni vorið 2013. Þetta er niðurstaða Ögmundar Jónassonar alþingismanns í grein sem birtist í morgun.
Væ?
Okkur er talin trú um að Kauphöll Íslands sé heiðarlegt fyrirtæki. Þar séu aðeins boðnar „afurðir“ sem séu vel til orðnar og heiðarlega. Nýverið kallaði Arionbanki saman sérvalinn hóp manna og bauð þeim að kaupa hlutabréf í Símanum á vildarverði áður en þau yrði sett á almennan markað. Svo sérkennilega vildi til að í hópnum […]
Drottningarviðtal Fréttablaðsins við Illuga svarar ekki lykilspurningum. Ekki minnst á lán frá Orku Energy
Óhætt er að segja að blaðamenn Fréttablaðsins séu ekki aðgangsharðir við ráðherrann eftir margra mánaða þögn og þrálátar spurningar.
Arion selur vildarvinum hlutabréf á undirverði. „Spilling sem verður að stöðva“
Sala Arions banka á hlutabréfum í Símanum til útvalinna vildarvina langt undir markaðsvirði er spilling sem verður að stöðva.
Tvær millur
Ragnheiður Elín Árnadóttir, ferðamálaráðherra Sjálfstæðisflokksins hefur ráðið flokksbróður sinn til þess að veita forstöðu nýstofnaðri Stjórnstöð ferðamála. Hann á að greiða úr því öngþveiti sem hún hefur komið ferðamálum í á tveimur árum. Hún ætlar að borga honum 1.950.000.- , eina miljón níuhundruð og fimmtíuþúsund krónur á mánuði, eða fjórum til fimm sinnum hærri laun […]
Ráðinn án auglýsingar. Fer þó fyrst á landsfund Sjálfstæðisflokksins
Svo sem kunnugt er hefur Hörður Þórhallsson verið ráðinn framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála. Það var gert án þess að starfið væri auglýst, sem er raunar ekki skylt þegar um er að ræða tímabundna ráðningu eins og í þessu tilviki.
Rýrnun
Herra Sigmundur Davíð ætlaði aldeilis að herja á „hrægammana“ eins og hann kallaði eigendur föllnu bankanna í ræðu og riti fyrir kosningar. Á flokksfundi framsóknar í vor klappaði hjörðin fyrir stórkallalegum yfirlýsingum leiðtogans um það hvernig hann myndi hremma miljarðahundruð af gömmunum. Þann 8. júní sl. fullyrti ríkisstjórn hans að hún myndi ná 900 milljörðum […]



