Efst á baugi
Enn eiga huldumenn tugmilljarða á Tortóla. Enn fá útvaldir að græða og hinir ríkustu hagnast mest
Viðskiptabankarnir, sem voru endurreistir og starfa í skjóli almannavaldsins, handvelja þá sem fá að eignast verðmæti á Íslandi á gjafverði. Um leið fá reikningshafar á aflandseyjum afslátt hjá Seðlabankanum.
Er þetta andlit ´góða fólksins’? Hvað er góða fólkið eiginlega?
Hugtakið ´góða fólkið’ virðist vera að festast í opinberri umræðu. Enginn veit þó nákvæmlega hvað það merkir.
Á Íslandi er ekki lengur til félagslegt húsnæðiskerfi. Sagan af okkur, Bretum og Svíum
Að hafa þak yfir höfuðið er lífsnauðsyn. Það skildu stjórnmálamenn fyrir hálfri öld. Nú er raunin önnur.
Af hverju en?
Þingmenn Framsóknarflokksins hafa verið að senda frá sér greinar um þjóðfélagsmál að undanförnu. Hver grein er undirrituð af tveimur þingmönnum hverju sinni. Orðfæri greinanna er keimlíkt; einnig uppbygging þeirra. Eins og verksmiðjuframleiðsla, líkast spuna almannatengla á tímakaupi. Nýjasta greinin birtist í Fréttablaðinu í dag, 1. október. Hún er um húsnæðismál og hefst hefst á þessum […]
Röng forgangsröð – uppfært
Það er harla einkennilegt að ríkistjórnin telji það forsendu fyrir áframhaldandi hagvexti á Íslandi að stofna til nýrrar stóriðju og fleiri virkjanir reistar. Núverandi ríkisstjórn áætlar að veita tugum milljarða úr ríkissjóð til þess að styrkja uppbyggingu stóriðju. Þegar kemur hins vegar að ferðþjónustu er allt skorðið við nögl þrátt fyrir að fegurstu náttúruperlur landsins […]
Húsaskjól
Sífellt fleiri Sandgerðingar missa eignir sínar til Íbúðalánasjóðs. Fjöldi íbúða þar syðra liggur undir skemmdum og jafnvel getur farið svo að rífa þurfi sumar þeirra. Íbúðalánasjóður á nú 90 íbúðir í bænum, eða um 16%. Og það er skortur á leiguhúsnæði í Sandgerði og íbúum fækkar af þeim sökum þrátt fyrir næga atvinnu. Um 50 […]
Mælarnir reyndust 5 milljarða gullgæs
Nærri 15 árum eftir þá furðulegu ákvörðun Orkuveitu Reykjavíkur að selja einkafyrirtæki rafmagns- og hitaveitumæla sína og leigja þá síðan aftur, liggur loksins fyrir hvað þetta ævintýri kostaði. Og talan á verðmiðanum er um 5 millljarðar. Þessir peningar hafa streymt úr sameiginlegum sjóðum Reykvíkinga í vasa einstaklinga í formi arðgreiðslna. Er í rauninni gerlegt að kalla […]
Drýldni
Við erum orðin vön því hér innanlands að forsætisráðherrann grobbi úr hófi þegar hann tekur til máls og segi ósatt þegar hann sperrir sig. Ferskustu dæmin um það voru úr stefnuræða hans við þingsetningu nú í mánuðinum. Þar til í gær. Þá varð til nýtt dæmi þegar ráðherrann fékk drýgindakast á þingi Sameinuðu þjóðanna. Orð […]
Opinberun
Forsætisráðherra lýsti því yfir í stefnuræðu sinni við þingsetningu að aldrei hafi verið lagt jafn mikið fé til heilbrigðismála eins og í nýja fjárlagafrumvarpinu. Skellibjöllurnar, formaður og varaformaður fjárlaganefndar hafa sagt það sama. Heilbrigðisráðherra hermdi eftir þeim, hálfsofandi. Nú hefur læknaráð Landspítalans lesið sig í gegn um frumvarpið og komist að því að fullyrðingar stjórnvalda […]
Afskræming
Forsíða DV 22-24. 09. 2015 er afar skýrt dæmi um eitraða fréttamennsku þar sem skynjun fólks er brengluð með ljósmynd og texta í þeim tilgangi að gera ósanna frétt trúlega. Með öðrum orðum: Það er verið að falsa frétt í ófrægingarskyni. Þetta er markviss tilraun til heilaþvottar. Það er rauðprentuð yfirfyrirsöng á fréttinni sem er […]
Hinir óttaslegnu
Stjórnarflokkarnir telja sig hafa fundið sóknarfæri á andstöðuna í tillögu borgarstjórnar Reykjavíkur um að sniðganga vörur frá Ísrael sem framleiddar eru á hernumdu svæðunum þar í landi. Af tilefninu tefla þeir fram óðamála iðnaðarráðherra og forsætisráðherra veður elg og kastar fram órökstuddum fullyrðingum um að samþykktin hafi stefnt miklum viðskiptum í stórfellda hættu. Björn Bjarnason […]
Flóttafólk, lifrarbólgulyf og fátækt fólk
Eitt sem er óþolandi í íslenskri umræðu er þegar fólk lætur sem allt sem við viljum gera vel og kostar peninga þurfi að bitna á þeim sem minnst mega sín í samfélaginu. Og eins að staða þeirra sem eru verst settir í samfélaginu sé náttúrulögmál sem ekkert fái haggað og að meðan því fólki hafi ekki […]



