trusted online casino malaysia

Efst á baugi

Stjórnmálalæsi

Stjórnmálalæsi

Þessa dagana er mikið rætt um byrjendalæsi sem mér þykir illa smíðað orð og ekki auðskiljanlegt. Einkum þegar það er komið í setningu eins og þessa úr Fréttablaðinu í morgun … einkunnir barna í skólum með byrjendalæsi … vegna þess að það er ekki alveg á hreinu hvað verið er að fjalla um; eða hvað er […]

Úlfar Þormóðsson 26/08/2015 Meira →
Afreksmaður

Afreksmaður

  Prófessor Hannes Hólsteinn hefur gert afar merka vísindalega uppgötvun: Snorri Sturluson var Sjálfstæðismaður. Það er aldeilis ómögulegt að gera sér grein fyrir hvaða áhrif þetta afrek prófessorsins muni hafa á söguritun. Það er þó talið víst að þau verða veruleg.

Úlfar Þormóðsson 21/08/2015 Meira →
Tómahljóð

Tómahljóð

Umræðan sem skapast hefur vegna þvingunaraðgerða Vesturveldanna gegn Rússum og viðskiptabanns Rússa á íslenskar fiskiafurðir eru merkilegar, meðal annars fyrir þær sakir hversu ómerkilegar þær eru. Ráðherra hrópar: Útgerðin á að mæta þessum skelli sjálf með því að greiða ekki út hagnað af rekstrinum. Og bætir svo við á sama andartaki í sömu ræðu: Ríkisstjórnin […]

Úlfar Þormóðsson 18/08/2015 Meira →
Gagnkvæmt froðusnakk

Gagnkvæmt froðusnakk

Svokallaðar viðskiptaþvinganir, sem ESB, Bandaríkin og nokkur fleiri ríki hafa beitt gegn Rússum, síðan í mars á síðasta ári hafa sáralítil raunveruleg áhrif. Innflutningsbann sem Rússar hafa beitt á móti, virðist örlítið beittara vopn, en munurinn er þó ekki mikill. Þvinganir vesturveldanna felast aðallega í banni við sölu hátæknihugbúnaðar og viðskiptum rússneskra stórfyrirtækja við banka […]

Jón Daníelsson 17/08/2015 Meira →
Hirting

Hirting

Það er augljóst að Davíð Oddsson, ritstjóri skrifar Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins þessa helgina.  Það er þungt í karlinum vegna þátttöku Íslands í þvingunaraðgerðum vesturveldanna gegn Rússunum og viðskiptabanns Rússa á íslenskar fiskafurðir í framhaldi af því. En hann tjáir þykkju sína með gáska og gerir lítið úr utanríkisráðherranum. Ritstjórinn hirtir ráðherrann og kvartar yfir því að […]

Úlfar Þormóðsson 15/08/2015 Meira →
Þarf Ísland að flytja inn kol til húshitunar innan nokkurra ára?

Þarf Ísland að flytja inn kol til húshitunar innan nokkurra ára?

Það styttist í alþjóðlegu loftslagsráðstefnuna í París í desember. Talið er að þetta sé einn mikilvægasti fundur mannkynssögunar og tugþúsundir manna víðsvegar m Evrópu eru að undirbúa að ganga til París til þess leggja á herslu á að skammtímahugsun og tækifæristefna stjórnmálamanna gangi ekki lengur hvað varði loftslagsmál og umgengni við náttúruna. Þetta sé síðasti […]

Guðmundur Gunnarsson 13/08/2015 Meira →
Talsmaður fáfræðinnar

Talsmaður fáfræðinnar

Það er sorglegt að sjá ungan mann forheimskast eftir því sem hann lifir lengur. Og grátlegt að sjá hann auglýsa fáfræði sína. Ásmund­ur Ein­ar Daðason (ÁED), þingmaður Fram­sókn­ar­flokks­ins og aðstoðarmaður forsætisráðherra skrifar um Landsbanka Íslands á heimasíðu sína. Hann vill að bankinn „hafa forystu í því að nýta ljósleiðaravæðingu landsins í stað þess að þjappa […]

Úlfar Þormóðsson 12/08/2015 Meira →
Bankatraust

Bankatraust

Hagfræðideildir einkabankanna reikna og reikna í leit að leiðum til þess að auka hagnað bankanna. Það er eðlilegt. Útreikningar þeirra eru byggðir á skammtímahugsun; hvar liggur falin gróðavon dagsins í dag. Deildirnar beita blekkingum, sveipa útreikninga sína dularklæðum; tala um þjóðarhag og benda á leiðir til þess að auka velsældina. Þessa tálmyndina setja þeir í […]

Úlfar Þormóðsson 11/08/2015 Meira →
Uppdráttarsýki umræðunnar

Uppdráttarsýki umræðunnar

Stjórnmálaflokkar íslenskra vinstrisinna og miðjumanna eiga ekki miklu fylgi að fagna þessa mánuðina ef mið er tekið af skoðanakönnunum. Þeir hjakka í svipuðu fara og þeir lentu í við síðustu kosningar þrátt fyrir að við völd sitji ríkisstjórnin sem nýtur aðeins fylgis þriðjungs kjósenda. Hins vegar streymir fylgið til Pírata sem hvorki hafa skilgreint sig […]

Úlfar Þormóðsson 07/08/2015 Meira →
Flónaska

Flónaska

Sigurður Ingi Jóhannesson, sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra hefur gefið það út að höfuðstöðvar Fiskistofu, sem nú eru í Hafnarfirði, verði á Akureyri frá og með 1. janúar 2016. Þetta er gert í óþökk starfsmanna, sem þrátt fyrir þriggja miljóna króna mútuboð frá ráðherranum, ætla ekki að flytja norður. En hann hefur leyfi til þess að gera þetta, […]

Úlfar Þormóðsson 30/07/2015 Meira →
Hógværðin

Hógværðin

Ólaf­ur Ragn­ar Gríms­son for­seti Íslands seg­ist ekki hafa viljað skyggja á Vig­dísi Finn­boga­dótt­ir með því að mæta á at­höfn­ina sem hald­in var í til­efni af því að 35 ár eru liðin frá því að hún var kos­in for­seti Íslands. Þetta kom fram í viðtali við hátignina á sjónvarpsstöðinni Hring­braut. Ólafur var gagnrýndur fyrir að hafa farið […]

Úlfar Þormóðsson 29/07/2015 Meira →
Sumarsmellurinn

Sumarsmellurinn

Nú berja margir á bönkunum með því að stokka saman fortíð þeirra og framtíðaráform. Hugvilltir stjórnmálamenn telja það til vinsælda fallið og hafa margir slíkir stigið fram með stóra lurka. Nýjasti lemjarinn er Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokksins. Ef kjósendur skyldu hafa gleymt honum þá er hann aðstoðarmaður forsætisráðherra, hugmyndafræðingur sem vill flytja Rarik og […]

Úlfar Þormóðsson 28/07/2015 Meira →
0,866