trusted online casino malaysia

Efst á baugi

Ísland, Færeyjar og unga fólkið

Ísland, Færeyjar og unga fólkið

Færeyjar gengu í gegnum fjármálakreppu á níunda áratutug 20. aldar. Í kjölfarið fluttu margir úr landi, einkum ungt fólk sem fór til Danmerkur. Færeyingum fækkaði í kjölfarið og langan tíma tók að snúa þróuninni við. Fyrir nokkrum árum reiknaði Hagstofa Færeyja út að eftir nokkra áratugi myndi aftur verða fólksfækkun og það myndi stórlega vanta […]

Ingi Rúnar Eðvarðsson 26/07/2015 Meira →
Rýrnun

Rýrnun

Ég segi það satt; margoft hef ég reynt að láta mér líka við orð forsætisráðherrans. En mér hefur ekki tekist það. Í gær, 22.07.´15, stóð hann framan við myndavélar ríkissjónvarpsins og fór að tala um fyrirhugaða nýbyggingu Landsbankans í Hafnarstræti/Tryggvagötu. Ég var spenntur; ég ætlaði að láta mér líka við manninn. Ráðherrann byrjaði á því […]

Úlfar Þormóðsson 23/07/2015 Meira →
Að hugsa sér!

Að hugsa sér!

Það kom fram á fundi velferðarnefndar alþings í dag að Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra mun berjast gegn frekari niðurskurði í heilbrigðisþjónustunni. Að hugsa sér! Þetta segir hann alveg hiklaust, maðurinn, til þess að bjarga heilbrigðiskerfinu, nú þegar  hundruð starfsmanna þess hafa sagt upp störfum, þar með taldir 260 hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum einum. Á sama fundi […]

Úlfar Þormóðsson 21/07/2015 Meira →
Hundar og fólk – Ástarsaga

Hundar og fólk – Ástarsaga

Síðustu daga hef ég rekist á fréttir, þras og heitar umræður um hundahald og réttindi hundaeigenda á netinu. Þegar slíkt sprettur upp er venjulega veruleg hætta á að ég missi trúna á mannkynið. Fáfræði og hleypidómar, „en fólk getur verið með ofnæmi“-rökin, „hundar eiga ekki að vera í þéttbýli“-bábiljan og svo loks „það á bara […]

Margrét Tryggvadóttir 20/07/2015 Meira →
Aumingjavæðing Íslands

Aumingjavæðing Íslands

Í umræðunni um Grikkland virðast margir hafa gleymt því í hvaða stöðu við vorum árið 2008 þegar ríkisstjórnir Íslands reyndu að fá lán frá Rússum og Kínverjum þegar ljóst var að Norðurlöndin og BNA höfðu alfarið hafnað frekari lánafyrirgreiðslu, nema þá í gegnum AGS og þá um leið tryggingu fyrir því að skipt yrði um […]

Guðmundur Gunnarsson 20/07/2015 Meira →
Örbyrgð og afgangur

Örbyrgð og afgangur

Samkvæmt frétt í Ríkisútvarpinu í dag, 20. júlí 2015, sem unnin var upp úr rannsókn könnunarfyrirtækisins Maskínu eiga fjöldamargir Íslendingar ekki til hnífs og skeiðar. Þessa staðreynd er hægt að orða á ýmsan veg. Útvarpið segir tíðindin þannig að tíundi hver landsmaður segi að sig „vanti mikið upp á að hann nái endum saman um mánaðamót.“ […]

Úlfar Þormóðsson 20/07/2015 Meira →
Þrugl

Þrugl

Heilbrigðisráðherra, Kristján Þór Júlíusson, vaknaði upp með andfælum nú í morgun, mætti í Bítið á Bylgjunni og sagði: „Fólk er skíthrætt við stöðuna í heilbrigðiskerfinu.“ Með stírurnar í augunum fór hann að gagnrýna neikvæða umræðu um kerfið. „Mér er nóg boðið … Mér er heitt í hamsi vegna þess að umræðan er í fyrirsögnunum og […]

Úlfar Þormóðsson 16/07/2015 Meira →
Rammaáætlun prófsteinn á orkufrekjuna?

Rammaáætlun prófsteinn á orkufrekjuna?

Okkur líður best heima hjá okkur þar er ró og friður. Sama á við um hálendið þar sækir fólk í umhverfi þar sem ekki er mikið áreiti. Þar sem við getum farið um skoðað umhverfið og notið samveru við það. Ferðamennirnir sem leita til Íslands koma af fjölbýlissvæðum þar sem hver einasti fermetri er skipulagður. […]

Guðmundur Gunnarsson 16/07/2015 Meira →
Nú ættum við að lána Grikkjum

Nú ættum við að lána Grikkjum

Íslensk stjórnvöld ættu nú að bregðast við tafarlaust og tilkynna, að Íslendingar veiti Grikkjum peningalán án skilyrða. Upphæðina mætti t.d. miða við það sem Sameinuðu þjóðirnar ætlast til að ríku löndin veiti árlega í þróunarstoð, sem sagt kringum fjóra milljarða króna eða um 27 milljónir evra. Þeir peningar ættu að vera til í Seðlabankanum. Slíkir […]

Jón Daníelsson 15/07/2015 Meira →
Hrun

Hrun

Heilbrigðisráðherra mókir. Þegar bráir af honum segist hann vera bjartsýnn á lausn kjaradeilna. Einkum hjúkrunarfólks. Að svo mæltu fellur hann í mók. Á fjórða hundrað manns hafa sagt upp störfum á Landspítalanum. Hann getur ekki starfað ef til uppsagnanna kemur. Flestir þeirra eru hjúkrunarfræðingar, 258. Þar til viðbótar eru 25 geislafræðingar, 26 lífeindafræðingar, sem eru […]

Úlfar Þormóðsson 15/07/2015 Meira →
Getur jöfnuður verið of mikill?

Getur jöfnuður verið of mikill?

„Jöfnuður er of mikill,“ sagði í fyrirsögn í Viðskiptablaðinu á dögunum og ég viðurkenni að fyrirsögnin stuðaði mig. Orðin koma frá Ásdísi Kristjánsdóttur, forstöðumanni efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins sem vitnar til nýrrar skýrslu OECD sem sýnir að hvergi sé meiri jöfnuður en á Íslandi. Hvergi sé bilið á milli hinna ríku og fátæku minna og hefur […]

Margrét Tryggvadóttir 15/07/2015 Meira →
Er hægt að kjósa burt skuldir?

Er hægt að kjósa burt skuldir?

Við lifum á áhugaverðum tímum. Síðan Geir bað guð að blessa Ísland hafa landsmenn vart haft undan að kynna sér málin, reyna að skilja hvernig í öllu liggur og velta fyrir sér hvað best sé að gera í stöðunni hverju sinni. Við höfum verið í sjokki, öskureið, reynt að hugsa um annað, hlúð að börnunum […]

Margrét Tryggvadóttir 08/07/2015 Meira →
0,893