trusted online casino malaysia

Efst á baugi

Eygló bítur frá sér

Eygló bítur frá sér

Það eru markverð tíðindi, þegar tveir ráðherrar eru farnir að skiptast á illvígum skeytum í fjölmiðlum. Þótt Eygló Harðardóttir, talaði afar gætilega í viðtali við RÚV í gær, leyndi sér ekki að það er nokkuð þungt í henni. Og það er ekki nema von. Yfirlýsing fjármálaráðuneytisins á föstudag, sem m.a. birtist í Kjarnanum, þess efnis […]

Jón Daníelsson 17/05/2015 Meira →
Sólstafir

Sólstafir

Þótt farið sé að bera á landflótta héðan á nýjan leik koma samt alltaf einhverjir til baka með reynslu, kunnáttu og mannvit. Það er dýrmætt. Einn slíkur, sem starfað hefur erlendis í áratugi og unnið sér slíkt traust og virðingu þar að honum var falið að stýra einhverju virtasta sjúkrahúsi heimsins, Karólínska í Stokkhólmi, er […]

Úlfar Þormóðsson 15/05/2015 Meira →
Tölvuárás setti Herðubreið á hliðina. „Neyðarástand,“ segir hýsingarfyrirtæki

Tölvuárás setti Herðubreið á hliðina. „Neyðarástand,“ segir hýsingarfyrirtæki

Ritstjórn og pennar Herðubreiðar hafa átt í miklum vandræðum undanfarna daga með að setja inn efni á vefinn. Þessi vandi átti sér óvæntar skýringar.

Ritstjóri Herðubreiðar 15/05/2015 Meira →
Skrokkalda – Trójuhestur Landsvirkjunar

Skrokkalda – Trójuhestur Landsvirkjunar

Í dag tekur Alþingi fyrir rammaáætlun og gera tilraun til að koma í gegn breytingatillögu um að færa m.a. Skrokkölduvirkjun í nýtingarflokk. Skrokkalda er staðsett á miðju landsins á ósnortnum Sprengisandi í jaðri Vatnajökulsþjóðgarðs. Þetta er tiltölulega lítil virkjun eins virkjanasinnar eru óþreytandi við að benda á. En málið er ekki svona einfalt því framkvæmdir […]

Guðmundur Gunnarsson 12/05/2015 Meira →
Merkileg ósvífni

Merkileg ósvífni

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra fullyrti í fyrirspurnatíma á Alþingi í dag, að ríkissjóður fengi ekki krónu í skatttekjur fyrr en laun fólks væru komin í 240 þúsund á mánuði. Það tók mig dálitla stund að átta mig á því, að í samhenginu hafði hann nefnt barnabætur og vaxtabætur. Þannig taldi hann sig hafa bjargað sér fyrir […]

Jón Daníelsson 11/05/2015 Meira →
Vigdísarvissa

Vigdísarvissa

  Í sjónvarpsþættinum Eyjunni á Stöð 2, sem sendur var út í gær,10.05., undir stjórn Björns Inga Hrafnssonar, mættu þau Björn Valur Gíslason, varaformaður Vinstri grænna, og Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar alþings til þess að ræða kjaramál og verkföllin sem nú standa. Björn Valur hefur lagt til að stjórnarandstaðan komi að lausn deilunnar með ríkisstjórninni […]

Úlfar Þormóðsson 11/05/2015 Meira →
Veiðigjaldafrumvarp skapar hvata til að lækka laun sjómanna

Veiðigjaldafrumvarp skapar hvata til að lækka laun sjómanna

Verði veiðigjaldafrumvarp sjávarútvegsráðherra að lögum verður hagkvæmara fyrir útgerðir að selja afla lægra verði en ella til skyldra vinnslustöðva. Þetta minnkar uppgefið aflaverðmæti og lækkar þar með laun sjómanna.

Ritstjóri Herðubreiðar 10/05/2015 Meira →
Banvæn verkföll

Banvæn verkföll

Við erum komin langan veg frá fyrstu áratugum 20. aldar, þegar verkafólki tókst – stundum og stundum ekki – að knýja atvinnurekendur til kauphækkana með verkföllum. Á þessum tímum snerust kjaradeilur oftar en ekki um það hvort verkafólk ætti fyrir mat. Þrátt fyrir gjörbreyttar aðstæður hefur Íslendingum aldrei tekist að ná nægilega víðtækri sátt um […]

Jón Daníelsson 09/05/2015 Meira →
VEIÐIGJÖLD 2015. Fjórði  hluti

VEIÐIGJÖLD 2015. Fjórði hluti

Í fyrsta og öðrum hluta þessarar greinar var fjallað um þau rök sem í frumvarpinu eru færð fyrir því að halda veiðigjöldunum svo lágum að þau skilja meginhluta auðlindarentunnar eftir hjá útgerðinni að eigandi hennar fær nær ekkert í sinn hlut og gerðir voru útreikningar á arði og auðlindarentu í sjávarútvegi og hlutdeild þjóðarinnar í […]

Indriði Þorláksson 09/05/2015 Meira →
Bleikur strokkur, íslenska moskan í Feneyjum og listin sem tækni

Bleikur strokkur, íslenska moskan í Feneyjum og listin sem tækni

Árið 1917 birti rússneski formalistinn Viktor Shklovskíj grein sem heitir (í þýðingu Árna Bergmanns) „Listin sem tækni“. Í greininni ræðst hann gegn þeirri viðteknu skoðuns þess tíma að list (og þar með talið skáldskapur) sé „sérstök aðferð hugsunar, nánar tiltekið sú aðferð að hugsa í myndum“ eins og segir í greininni. „Ef að allt hið flókna […]

Margrét Tryggvadóttir 08/05/2015 Meira →
Geta þrír örflokkar höggvið á hnútinn?

Geta þrír örflokkar höggvið á hnútinn?

Ríkisstjórnin ætlar augljóslega ekkert að aðhafast til að leysa þær kjaradeilur, sem á næstu vikum munu beinlínis leggja íslenskt samfélag í rúst. Sú hugdetta hefur kannski ekki á sér trúverðugt yfirbragð, að stjórnarandstaðan geti hlaupið í skarðið og höggvið á hnútinn, en við skulum samt skoða möguleikann aðeins nánar. Tvær afar skarplegar greiningar á samfélagsástandinu […]

Jón Daníelsson 07/05/2015 Meira →
Þurfalingar

Þurfalingar

  Það er mikið látið með útgerðina. Sagt er að hún sé sjálfbær og vel rekin og þess vegna megi ekki hreyfa við rekstrargrundvelli hennar. Best rekna einkaútgerð í heimi. Og að það þurfi að ríkja „fyrirsjáanleiki“ til þess að hinn árangursríki rekstur geti haldið áfram. Þess vegna er sköttum létt af henni. Og nú […]

Úlfar Þormóðsson 06/05/2015 Meira →
0,865