Efst á baugi
Óorð
Við erum rík þjóð. Við búum í velferðarsamfélagi. En við erum nísk í augum heimsins. Við höfum skuldbundið okkur til þess að láta ákveðna prósentutölu af þjóðarauðnum renna til fátækra landa, til sveltandi þjóða. En við stöndum ekki við það. Greiðum aðeins þriðjunginn af því sem við höfum lofað að borga. Við erum rík […]
VEIÐIGJÖLD 2015. Fyrsti hluti
Á vormánuðum 2014 voru samþykkt á Alþingi lög um veiðigjöld sem gilda áttu til eins árs. Í grein um frumvarpið og umsögn sem ég gaf atvinnuveganefnd Alþingis benti ég m.a. á að í frumvarpinu fælist sú breyting að horfið væri frá þeirri meginhugsun laganna frá árinu 2012 að leggja gjald á auðlindarentu í fiskveiðum og […]
Valdstjórnin veitist að Þórsmörk
Ósvífni ráðandi afla í samfélagi okkar í dag gagnvart náttúrunni og vilja fólksins í landinu á sér að því virðist engin takmörk þessa dagana. Sorgardagur í náttúruvernd Yfirítölunefnd hefur nú úrskurðað um beit á Almenninga í Rangárþingi eystra. Tveir nefndarmenn af þremur komust að þeirri niðurstöðu að leyfa mætti beit 60 lambáa […]
Aukavinna ráðherra
Á vefsíðunni Hringbraut er athyglisverð frétt. Þar segir meðal annars: Menntamálaráðherra fór í lok mars í opinbera vinnuferð til Kína á kostnað ríkisins með hóp embættismanna og annarra. Með í för voru fulltrúar frá fyrirtækinu Orka Energy sem vinnur að orkutengdum verkefnum í Asíu. Það sem ekki hefur komið fram opinberlega er að ráðherrann er […]
Alcoa boðar stjórnmálamenn á fund sinn. Vill meðal annars ræða umhverfismál. Virðist vera einsdæmi
Um miðjan mars boðaði álfyrirtækið Alcoa Fjarðaál á sinn fund sveitarstjórnarmenn í stærstu sveitarfélögum á Austurlandi. Verkefnið var að ræða stefnumörkun í mikilvægri almannaþjónustu.
Íslands horfnu hús
Eins og þeir þekkja sem unnið hafa við ferðamennsku er fátt ömurlegra en að þurfa að fara með bílfarma af túristum að tilbúnum forminjum. Flestir ferðalangarnir skynja lágkúruna sem þessu fylgir og glotta yfir fyrirlitninguna til þess að dylja vonbrigði sín yfir gabbinu. Fyrir þremur og hálfu ári trommaði trénaður starfsmaður stærsta ferðafélags landsins fram með […]
Vangaveltur um þrætur og staðsetningu mannvirkja
Sverrir Kristjánsson ritaði einu sinni að þrætulist íslenskra bænda hafi komið dönskum embættismönnum mjög á óvart. Bændurnir íslensku gátu þrætt áratugum saman um ágreiningsefni, einkum landamörk. Ekki dugðu þeim íslenskir dómstólar, enda enduðu flest ágreiningsefni fyrir Hæstarétti í Kaupmannahöfn. Það er greinilegt að Bjartur í Sumarhúsum lifir góðu lífi í íslenskri þjóðarsál. Á liðnum áratugum […]
Órar
Ég var einn þeirra sem hélt að frétt um að forsætisráðherra vildi byggja gamla heimavist fyrir háskólastúdenta við Alþingishúsið, hefja á ný vinnu í húsgrunni fyrir íslensk fræði á Melavellinum og reisa Valhöll úr ösku á Þingvöllum, væri fyrsta aprílgabb. Á ráðherranum mátti helst skilja að öll þessi steypa yrði vígð 2018 í tilefni […]
Söluvísindi
Af og til birtast fréttir, í nafni vísindanna, um heilnæmi þessa og hins. Þrautseigastir við birtingu vísindalegra heilsufrétta af vörum sínum eru vínframleiðendur. Þeir hafa aðgang að vísindamönnum sem ítrekað setja fram kenningar um að dagleg rauðvínsdrykkja sé virkileg heilsubót. Í glansviðtölum éta læknar þetta upp eftir þeim en skýra þó ekki endilega frá […]
„Ekkert fer verr með þá lægst launuðu en verðbólgan.“ Gagnleg upprifjun á nýliðinni sögu
Á níunda áratug síðustu aldar hækkuðu laun um 1.600 prósent samkvæmt kjarasamningum. Kaupmáttur lækkaði á sama tíma um 10 prósent.
Aðdragandi Þjóðarsáttarinnar
Undanfarið hefur töluvert verið rætt um aðdraganda og gerð Þjóðarsáttarinnar árið 1990. Undirritaður var einn af þeim sem tók þátt í miklum nefndarstörfum á vegum ASÍ á þessum árum þegar undirbúningur þessa umtalaða samnings hófst árið 1988 og sú vinna stóð í 4 ár. Mikið þurfti til þess að ná samtakti innan verkalýðshreyfingarinnar og síðan […]
Farsæld
Það verður skýrara með hverjum deginum sem líður að íslenska heilbrigðiskerfið er að molna. Í vefmiðlinum Pressunni, 28.03. 2015, birtir Gústaf Adolf Bergmann Sigurbjörnsson kostnaðarsamanburð sem hann gerði á íslenska og danska kerfinu. Í febrúar 2014 var hann í Danmörku, fékk svæsna lungnabólgu, fór með sjúkrabíl á sjúkrahús í Hvidovre. Þar lá hann í […]



