trusted online casino malaysia

Efst á baugi

Að liðnu ári: Lesendur vilja eiga sína Herðubreið. Þakk fyrir viðtökurnar

Að liðnu ári: Lesendur vilja eiga sína Herðubreið. Þakk fyrir viðtökurnar

Tímaritið Herðubreið fagnar nú ársafmæli sínu í gerbreyttri mynd á vefnum. Á þeim tíma hafa birst á síðum hennar um 700 pistlar, 170 ljóð, þar af ótalmörg frumbirt hér, og 150 orðskýringar.

Ritstjórn 28/03/2015 Meira →
Frelsi og mannfórnir

Frelsi og mannfórnir

Eftir Kristin Hrafnsson Í sjálfstæðisyfirlýsingu Bandaríkjanna segir að rétturinn til lífs, frelsis og sóknar eftir lífshamingju sé helgur. Ég hef alltaf verið hrifinn af þessu plaggi, ekki síst vegna þess að í fáum öðrum mikilvægum pólitískum skjölum sögunnar er talað um hamingjuna. Helgi lífs og frelsis er svo auðvitað grunnstef í okkar pólitísku hugmyndafræði. En […]

Gestastofa 27/03/2015 Meira →
Aulahrollur

Aulahrollur

  Eitt af því sem oft hefur vakið hjá mér aulahroll er þjóðfáni. Ekki sá íslenski umfram aðra, ekki flagg í hálfri stöng, ekki fáni við hún að heiðursdegi, heldur fáni á vörum og varningi, blakatandi fáni við einbýli og opinberar stofnanir á virkum degi, flagg á skrifborði; fáninn á veggnum sem skrifborð íslenska utanríkisráðherrans […]

Úlfar Þormóðsson 26/03/2015 Meira →
Stórsigur fyrir verkfallsglaða

Stórsigur fyrir verkfallsglaða

  Niðurstaða Félagsdóms í gær er kostuleg. Reyndar vanhugsuð, mótsagnarkennd og stórfurðuleg. Undanfarna tvo áratugi eða svo hafa í vaxandi mæli, og reyndar vegna kröfu frá SA, verið farið yfir í gerð vinnustaðasamninga í Karphúsinu í stað þess að hvert félag geri sinn samning. Í þessu sambandi má t.d. benda á álverin.   Innan RSÍ […]

Guðmundur Gunnarsson 26/03/2015 Meira →
Geirvarta

Geirvarta

Geirvarta (kvk.) = seinni hluti orðsins, varta, er auðskilinn.

Um fyrri hlutann er erfiðara að…

Ritstjóri Herðubreiðar 26/03/2015 Meira →
Um kaldar kveðjur

Um kaldar kveðjur

Fulltrúar Heimssýnar í bæjarráði Fjarðabyggðar bókuðu eftirfarandi á fundi þar í dag: „Meirihluti bæjarráðs Fjarðabyggðar lýsir furðu sinni á stefnubreytingu Samfylkingarinnar á nýafstöðnum landsfundi til olíuleitar á Drekasvæðinu. Finnst bæjarráði þetta kaldar kveðjur til íbúa Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs, en taka skal fram að Samfylkingin bauð ekki fram í neinu af átta sveitarfélögum á Austurlandi.“ Þessir […]

Björgvin Valur 25/03/2015 Meira →
Bjargaði Sigríður Ingibjörg bæði Árna Páli og Samfylkingunni með formannsframboði sínu?

Bjargaði Sigríður Ingibjörg bæði Árna Páli og Samfylkingunni með formannsframboði sínu?

Færa má fyrir því rök að staða Árna Páls Árnasonar sem formanns Samfylkingarinnar væri enn veikari ef ekki hefði komið til framboðs Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur.

Ritstjóri Herðubreiðar 24/03/2015 Meira →
Lýðræði í kreppu – lengi lifi lýðræðið!

Lýðræði í kreppu – lengi lifi lýðræðið!

Það var sérstök tilfinning að flytja erindi um lýðræði og stjórnarskrá í Aþenu, sjálfri vöggu lýðræðisins. Mér var boðið á ráðstefnu um lýðræðisumbætur, þátttökulýðræði og stjórnarskrármál og falið að fræða viðstadda um það hvernig við Íslendingar sömdum okkar eigin stjórnarskrá í opnu ferli þar sem þátttaka hins almenna borgara var tryggð á flestum stigum málsins. Ég […]

Margrét Tryggvadóttir 24/03/2015 Meira →
Til umhugsunar

Til umhugsunar

  Það er gagnlegt að lesa grein sem Svavar Gestsson, fyrrverandi menntamálaráðherra mm. skrifaði á heimasíðu sína, Hugmynd, í gær, 23. marz. Hún er unnin  upp úr umsögn sem hann skrifaði fyrir Tímarit Máls og menningar um bók Styrmis Gunnarssonar, Í köldu stríði. Greinin varpar ljósi á þá áleitnu spurningar sem sífellt sækja að, hvers […]

Úlfar Þormóðsson 24/03/2015 Meira →
Aðför að náttúrunni

Aðför að náttúrunni

Ósnotin víðerni og önnur náttúruleg svæði eru mikilvæg auðlind sem skapað mikinn fjölda starfa og eru í dag orðin ein helsta tekjulind okkar ásamt því að vera þýðingarmikill þáttur í gjaldeyrisöflun þjóðarinnar. Varðveisla ósnortinna víðerna eru þannig í dag orðin ein helsta grunnstoð íslensks samfélags. Í samtölum við ferðamenn sem hingað hafa komið er áberandi […]

Guðmundur Gunnarsson 22/03/2015 Meira →
Óvænt uppákoma: Í fyrsta sinn fer kjör formanns fram á landsfundi. Kostar nokkur þúsund krónur að greiða atkvæði

Óvænt uppákoma: Í fyrsta sinn fer kjör formanns fram á landsfundi. Kostar nokkur þúsund krónur að greiða atkvæði

Í fyrsta sinn í sögu Samfylkingarinnar fer formannskjör fram á landsfundi, en ekki í allsherjaratkvæðagreiðslu allra félagsmanna eins og venja hefur verið.

Ritstjórn 20/03/2015 Meira →
Glæta

Glæta

  Vorið kemur á morgun, 20.03. samkvæmt almanakinu og vorleysingar eru hafnar í pólitíkinni. Samkvæmt nýjustu skoðunarkönnun MMR er augljós klofningur í Sjálfstæðisflokknum, hrun í Framsókn þrátt fyrir síendurteknar vinsældarveiðar, fylgi Bjartrar framtíðar minnkar frá fyrri mælingum, fylgi Samfylkingar og Vinstri grænna stendur í stað en Píratar vaxa, mælast með 23,9% stuðning, mest allra stjórnmálaflokka. […]

Úlfar Þormóðsson 19/03/2015 Meira →
0,853