Efst á baugi
Svona hefði Jesús brugðist við: Pabbi! Geturðu hjálpað Múhameð að byggja mosku á Íslandi?
Ungur íslenskur leikari búsettur í Danmörku, Dagur Snær (sem kallar sig jafnan Daily Snow), hefur sett saman myndband þar sem hann ímyndar sér viðbrögð Jesúsar við moskumálinu. Myndbandið talar fyrir sig sjálft, en Dagur birti það ásamt meðfylgjandi hugleiðingum: Ég er einn af þeim sem horfir á Ísland úr fjarlægð, en kem þó stundum í heimsókn. […]
„Þeim verður ekki kápan úr því klæðinu.“ Forsætisráðherra varar við útsendurum erlendra kröfuhafa
Íslendingar þurfa að vera á varðbergi gagnvart málflutningi sem ætlað er að draga kjarkinn úr stjórnvöldum í uppgjöri gömlu bankanna.
Framhaldið veltur á hinum. Skiptir miklu að þeir séu staðfastir og veiti ekki flokki af þessu tagi völd
„Með því tala inn í útlendinga- og múslimahatur eru framsóknarmenn alls ekki að taka mið af norrænni reynslu heldur að…
Áslaug: Þetta var ekki bara eitthvert skipulagsmál. Framsókn þarf að gera hreint fyrir sínum dyrum
„Mér finnst að borgarstjórnarhópur Framsóknar og flugvallarvina þurfi að skýra fyrir hvað þær standa, hvert er verið að fara. Það var verið að róa á ákveðin mið, og í umræðuþáttum um helgina eftir kosningarnar hefði alveg verið hægt að hreinsa, ef vilji hefði verið til þess, en það var ekki gert nógu skýrt,“ sagði Áslaug […]
Þetta eru nokkrir þeirra sem útspil Framsóknarflokksins gladdi: Múslimar eru kakkalakkar og Dagur er föðurlandssvikari. Drepum þá
Umræðan sem sprottið hefur að frumkvæði Framsóknarflokksins um byggingu nýrrar mosku í Reykjavík (þær eru tvær nú þegar) tekur á sig ýmsar myndir. Í athugasemdum við frétt Vísis 1. júní má sjá nokkur dæmi um röksemdir þeirra sem eru andvígir byggingu hennar. Sum ummælanna hefur Vísir nú fjarlægt, en þau eru til á fjölmörgum skjáskotum. […]
Saga hörmunga – fátæktar, óréttlætis, grimmdar, beiskju og haturs. Ástar? Já, en oftast þó ástarsorgar
„Lífið er miskunnarlaust, – og þessi dans er líka miskunnarlaus. Hann er svo ofsafenginn, svo sársaukafullur og hamslaus, að það jaðrar við, að maður fari hjá sér. Gráti af skömm. Hann segir allt, sem segja þarf um óréttlætið í heiminum, misskiptinguna og mannvonskuna.“ Þannig hljómar brot úr grein Bryndísar Schram þar sem hún lýsir dramatískri […]
Víst nú þarfnast varnar / viska, trú og gæska. / Sturlun að oss steðjar. / Stríðið það er hafið
Framsókn fór að gramsa
forarpolli’í sora
haturseiturs aumra
ýta lægstu hvata.
Þannig hljóðar upphafið að kvæði…
Sitthvað er mikið að í Reykjavík. Húsasmiðjuteip, húsgögn tefja talningu og kjörstjórn sem er mjög líklega ólögmæt sjálf
Tilkynningar yfirkjörstjórnar um greidd atkvæði í Reykjavík í gærkvöldi sýndu áður óþekktar sveiflur í fylgi flokka, svo að fróðustu menn muna ekki annað eins. Um þetta voru Bogi Ágústsson fréttamaður og Ólafur Þ. Harðarson prófessor sammála í kosningasjónvarpi Ríkisútvarpsins. Formaður kjörstjórnar í Reykjavík þurfti einnig ítrekað að endurtaka tölur í kosningasjónvarpinu þangað til þær sýndu […]
Við þurfum hugsandi réttsýna leiðtoga sem taka sér ekki far með því viðurstyggilegasta í fari manneskjunnar
„Við lifum á hættulegum tímum. Við sjáum það þegar litið er yfir stjórnmálaþróun í Evrópu. Eitrið er farið að seitla upp á yfirborðið og það sums staðar hressilega. Eftirhrunsárin eru okkar eftirstríðsár. Óttinn og reiðin krauma undir og það er á ábyrgð stjórnmálamanna að íslenska þjóðin verði ekki fórnarlamb þeirra,“ skrifar Sigtryggur Magnason í grein […]
„Forsætisráðherra er kríp sem fjölmiðlarnir sköpuðu.“ Eiga fjölmiðlar að forðast frásagnir af öfgaskoðunum og mannhatri?
Mjög skiptar skoðanir eru í samfélaginu um að hversu miklu leyti fjölmiðlar eiga að segja frá „öfgaskoðunum“ og sjónarmiðum jaðarhópa. Einkum hefur þessi umræða magnast…
Víkingaminjar finnast óvænt í Michigan. Sólarrafhlöður klára orku frá sólinni. Satt og logið á vefnum
Síaukin notkun jarðarbúa á sólarrafhlöðum mun smám saman draga alla orku úr sólinni og lækka hitastig á jörðinni um þrjátíu gráður á næstu tuttugu árum. Þetta er niðurstaða rannsóknar vísindamanna við Wyoming Institute of Technology, sem sagt er frá í bandaríska vefmiðlinum National Report í gær. Þessi sláandi tíðindi hafa eðlilega vakið bæði ugg og […]
85 manns eiga jafnmikið og helmingur jarðarbúa. Óvenjuleg ráðstefna ríka fólksins í Lundúnum
85 ríkustu einstaklingar heims eiga jafmiklar eignir og hinn fátækari helmingur mannkyns, þrír og hálfur milljarður manna. Þessu fólki mætti…



