Efst á baugi
Oddviti Framsóknar: Vatnsmýrin verður eins og draugahverfi í Abú Dabí. Félög megi ekki eiga íbúðir
Oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, hefur útskýrt betur hugmyndir sínar um hvað verður um Vatnsmýrina ef flugvöllurinn fer þaðan.
Píratar boða hugbúnað til að auðvelda undirskriftir gegn þingmálum. Kynnt í þingræðu á eldhúsdegi
Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata kynnti í kvöld væntanlegan hugbúnað sem ætlað er að einfalda og
„Það er bara svo gleðilegt að sjá svona gott efni.“ – Hver er eiginlega þessi Baldvin Z?
„Eins og títt er eftir góða listneyslu sat maður hálf lamaður í sætinu að lokinni sýningu á meðan fólkið ruddist út í raunveruleikann,
Réttlátara að láta hvern og einn hafa 300 þúsund krónur. Komandi kynslóðir greiða fyrir afglöp núlifenda
Ef vilji er til þess sð veita miklu fé úr ríkissjóði, eins og skuldatillögur ríkisstjórnarinnar gera ráð fyrir, væri réttlátara að láta hverjum og einum Íslendingi í té vissa upphæð. Miðað við umfang skuldafrumvarpsins mætti færa hverjum einstaklingi tæpar 300 þúsund krónur. Þessari hugmynd varpar Guðmundur Steingrímsson fram í áliti sínu á skuldaniðurfærslufrumvarpi ríkisstjórnarinnar. „Einstæðingar […]
Aðgerðir ríkisstjórnar óréttlátar og engin leiðrétting. Óforsvaranleg mismunun sem eykur verðbólgu og hækkar vexti
Það er óforsvaranlegt að afhenda 80 milljarða af skattfé fólki sem þarf ekki á því fé að halda. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í lánamálum rétta ekki hlut mestu fórnarlamba fasteignabólunnar. Þetta er niðurstaða Péturs H. Blöndal, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í áliti sem hann hefur skilað um skuldaniðurfærslufrumvarp ríkisstjórnarinnar. Pétur rekur dæmi um tvenn hjón, sem keyptu sams konar […]
Fátækasti hreppur í Evrópu varð sá ríkasti í gegnum menntun og opið samfélag. Lærdómar fyrir Ísland
Menntun og opið samfélag í virku alþjóðlegu samstarfi er lykillinn að endurreisn Íslands. Þetta er í grófum dráttum niðurstaða Jóns Baldvins Hannibalssonar í grein sem hann birtir í Herðubreið. Í greininni teiknar Jón upp mynd af fjármálakerfi sem komið er úr böndunum og lýðræðinu stafar hætta af. Eitt svarið við því – ekki síst fyrir smáþjóðir – er að efla […]
Oddviti Framsóknar: Umræða um gjaldeyrishöftin snýst í raun og veru um flugvöllinn. Hefur ekki kynnt sér frumvarp um skuldaniðurfærslu
Nýkynntur oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, telur að umræða um gjaldeyrishöftin snúist í raun og veru um Reykjavíkurflugvöll. Eða jafnvel öfugt – að þrýstingur á að flugvöllurinn fari sé afleiðing gjaldeyrishaftanna. Þetta má lesa í viðtali við hana í Reykjavík vikublaði sem kom út í dag. Þar er Sveinbjörg spurð um húsnæðismál í borginni […]
Varaþingmaður Sjálfstæðisflokks: Ekki samþykkja niðurgreiðsluna. Samstarf við Framsókn réttlætir ekki rándýr atkvæðakaup
Fyrirætlun stjórnvalda um að greiða niður verðtryggð lán heimila með almannafé felur í raun í sér tilfærslu frá þeim tekjulægri til þeirra tekjuhærri og frá þeim eignaminni til þeirra eignameiri. Aðgerðin er dýr og færir fé frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins. Þetta skrifar Oddgeir Ágúst Ottesen, hagfræðingur og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, í grein í blaðinuu […]
Ögurstund í aðdraganda Hruns: Þegar Davíð Oddsson og Mervyn King gerðust pennavinir
Ein ákvörðun hefði öðrum fremur getað komið í veg fyrir hrun íslenska bankakerfisins. Það var að þiggja aðstoð Englandsbanka við að draga úr umsvifum þess og þar með áhættunni fyrir allt hagkerfið. Sú aðstoð var í boði vorið 2008, en Davíð Oddsson afþakkaði hana. Þetta fullyrðir Ólafur Arnarson í bók sinni, Skuggi sólkonungs, sem kemur […]
Ætlar Kári að selja tryggingafélögum upplýsingar eftir tunguspaðaátakið? Af og frá, segir hann. Allt gert í þágu þekkingar
Er hugsanlegt að tryggingafélög eða aðrir fái aðgang að upplýsingum sem safnast í átaki Íslenskrar erfðagreiningar, sem nú stendur yfir?
Gerðu svo vel, herra blaðamaður. Samtal um leka, trúnað og ábyrgð
Einn angi lekamálsins svokallaða er hversu ríkur trúnaður blaðamanns er við heimildamann sinn ef gögn, sem lekið er, eru sett fram til að meiða þriðja aðila eða koma röngum upplýsingum á framfæri. Einn af reyndustu blaðamönnum landsins og nú laganemi, Þór Jónsson, hefur sviðsett samtal á milli blaðamanns og heimildamanns þar sem farið er gaumgæfilega […]
Framliðnir færast enn í aukana: Afi heitinn benti á rúmlega fjörutíu milljónir
Allir helstu fjölmiðlar landsins sögðu þá frétt í gær að framliðinn afi konu á höfuðborgarsvæðinu…



