Efst á baugi
Vildu fara í „góðan bissniss“ á kostnað ríkisins. Voru sjálfir beðnir um ráð í „markaðsvæðingu“ ríkisrekstrar
Yfirmenn í fjármálaráðuneytinu í tíð Árna Mathiesen sóttust eftir ráðgjöf og hugmyndum viðskiptajöfra um hvar mætti einkavæða frekar eða „markaðsvæða“ verkefni í ríkisrekstri. Stórfyrirtækin nýttu sér þessi tengsl til að setja „löppina inn fyrir þröskuldinn“ í keppni um verkefni sem þeim þóttu gróðavænleg og þar sem ríkissjóður borgaði brúsann. Þetta kemur meðal annars fram í […]
Hvar er framsóknarkanínan núna? Um fundvísi flokks á sápukúlur
Framsóknarmenn hafa verið öðrum fundvísari á svona „sápukúlumál“, mál sem…
Fréttaskýring: Jörðin gliðnar í kringum Bjarna. Hið nýja atvinnulíf leitar annarra kosta
Innan Sjálfstæðisflokksins hafa nú myndazt slíkar sprungur að vafasamt er að forystu flokksins takist að kítta upp í þær og halda flokknum saman. Í sumum tilvikum er raunar réttara að tala um gjá en sprungur. Út á við birtast þessar jarðskorpuhreyfingar núna einkum í afstöðu til aðildarviðræðna við ESB. Svo að segja gervallt atvinnu- og viðskiptalífið […]
Til Barcelona í einkaþotunni hans Magga frænda til að hitta Eið Smára. Játningar blaðamanns
„Enginn spurði gagnrýninna spurninga og allir fjölmiðlamennirnir, þar á meðal ég, birtu jákvæðar og gagnrýnislausar fréttir um samninginn þar sem „óskabörnin“ tvö voru í fyrirrúmi. Sú grundvallarspurning hve mikið Eiður Smári fengi greitt frá Eimskipum fyrir samninginn heyrðist ekki og enn þann dag í dag hefur henni ekki verið svarað.“ Þannig segist Inga Frey Vilhjálmssyni […]
David Moyes er miðlungs heildsali. Vélarvana skip rekur til hafs
Stórlið Manchester United féll í kvöld úr keppni í Meistaradeild Evrópu eftir tap gegn Bayern Munchen. Þar með eru úr sögunni allir möguleikar liðsins á einhvers konar titli á leiktíðinni, hinni fyrstu undir stjórn hins umdeilda Davids Moyes. Sérlegur fótboltafræðingur Herðubreiðar, Sparkhéðinn, hefur þegar dæmt Moyes til vistar á þar til gerðri stofnun, og við […]
Skattgreiðendur bera og hafa borið kostnað vegna fjölmiðla 365. Fullyrðingar um annað eru rangar
Fréttastofa Stövar 2 keyrir nú auglýsingastiklu þar sem hún segist „vinna sína vinnu án þess að kosta ykkur skattfé.“ Þetta er ekki rétt, eins og Þórður Snær Júlíusson rekur í grein í Kjarnanum. Þar er rifjað upp gjaldþrot hins gamla rekstrarfélags 365, þar sem 3.700 milljónir króna töpuðust. Meðal þeirra sem höfðu lánað félaginu fé […]
Utanríkisráðherra: Engin áhrif umsóknar og viðræðna. Engin „aðlögun“ að Evrópusambandinu
Engar breytingar hafa orðið á lögum á málefnasviði utanríkisráðuneytisins vegna aðildarumsóknar og viðræðna við Evrópusambandið. Þetta kemur fram í svari Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra við fyrirspurn Guðbjarts Hannessonar alþingismanns. Guðbjartur spurði ráðherrann þriggja spurninga um „aðlögun að Evrópusambandinu“: 1. Hvaða breytingar sem orðið hafa á lögum á málefnasviði ráðuneytisins eða á stofnunum þess frá 2009 […]
Leyndarráðgjafar með 17 þúsund á tímann. Ganga sjálfala og halda engar fundargerðir. „Er öllum virkilega andskotans sama?“
Forsætisráðherra skipaði í nóvember sex menn til að vera ríkisstjórninni til ráðgjafar um afnám gjaldeyrishafta. Um þetta var hvergi tilkynnt, hvorki alþingi né fjölmiðlum, og skipunarbréf þeirra birtist fyrst í svari forsætisráðherra við fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar á alþingi í dag. Í svarinu kemur einnig fram að ráðgjafarnir fá greiddar 17 þúsund krónur á tímann, en […]
Vísir fékk hundruð milljóna ívilnanir frá hinu opinbera. Byggðakvóti og opinbert hlutafé
Fiskvinnsla Vísis á Þingeyri hefur fengið 1.300 tonn af byggðakvóta byggðarlagsins til vinnslu á síðustu 13 árum. Fyrirtækið byggir á grunni fiskvinnslunnar Fjölnis sem Byggðastofnun lagði til 100 milljónir í hlutafé, en það var síðar yfirtekið af Vísi. Þetta kemur fram á fréttavefnum bb.is og reiknar blaðið heildarverðmæti þessa stuðnings upp á 450-700 milljónir. „Miðað […]
Grænar og bláar krumlur: Allt rangt við að maður í þessari stöðu verði fréttastjóri Ríkisútvarpsins
Það gefur augaleið að aðstoðarmaður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kemur síðastur umsækjenda til greina í starf fréttastjóra Ríkisútvarpsins. Þetta er niðurstaða Friðriks Þórs Guðmundssonar, blaðamanns og kennara í fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands í grein í Herðubreið. Friðrík Þór á þarna við Benedikt Sigurðsson, einn umsækjenda um starfið. Hann var áður aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Framsóknarflokksins. […]
Stofuskápurinn hennar ömmu: Lukkulegir gröfustjórar og óhamingjusamir málfræðingar. Margrét Pála segir dæmisögu
„Allur framhaldsskólinn, allar væntingar samfélagsins, þær byggjast enn á stofuskenknum hennar ömmu – á því að öll börn eiga að enda með mynd með stúdentshúfuna á stofuskápnum hjá ömmu,“ sagði Margrét Pála Ólafsdóttir í erindi á ársfundi Samtaka atvinnulífsins. Þar fjallaði hún um einsleitni í skólastarfi þar sem samræmdar kröfur eru gerðar til allra, óháð getu […]
Öll ríki hafa fengið undanþágur eða sérlausnir. Samningar en ekki „aðlögun“
„Öll ný aðildarríki hafa hingað til getað samið um sérlausnir um ákveðin málefni er hafa legið þeim þyngst á hjarta og snerta mestu hagsmuni ríkjanna.“ Þetta er ein niðurstaðna skýrslu Alþjóðamálastofnunar um Evrópumál sem kynnt var í morgun. Bent er á að ýmsar sérlausnir, undanþágur og gildistökufrestir fyrir Ísland hafi þegar verið frágengið þegar gert var hlé […]



