trusted online casino malaysia

Efst á baugi

Sálgreining á Sigmundi Davíð: Hrokafullur, skortir samlíðan og samhygð. Vill vera blanda af Jónasi frá Hriflu og Davíð

Sálgreining á Sigmundi Davíð: Hrokafullur, skortir samlíðan og samhygð. Vill vera blanda af Jónasi frá Hriflu og Davíð

Ástæða þess að fólk bregst verr við ýmsum ummælum Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar en annarra stjórnmálamanna er sú, að hann er hrokafullur og talar niður til þjóðarinnar. Þetta sagði séra Hildur Eir Bolladóttir í Sunnudagsmorgni, sjónvarpsþætti Gísla Marteins Gunnlaugssonar um helgina. Þar var rætt um þau ummæli forsætisráðherra, að margvísleg tækifæri fyrir Ísland fælust í þeim […]

Ritstjórn 07/04/2014 Meira →
Hinn nýi flokkur Benedikts er nú þegar til. Hann heitir Björt framtíð

Hinn nýi flokkur Benedikts er nú þegar til. Hann heitir Björt framtíð

Benedikt Jóhannesson og félagar þurfa ekki að stofna nýjan stjórnmálaflokk hægra megin við miðju og hliðhollan Evrópusambandinu. Hann er til nú þegar og heitir Björt framtíð. Þetta skrifar Björn Valur Gíslason skipstjóri í grein í Herðubreið. „Benedikt boðaði í ræðu sinni stofnun nýs stjórnmálaflokks hægramegin við miðju og hliðhollum ESB. Slíkur flokkur er reyndar til nú þegar en […]

Ritstjórn 06/04/2014 Meira →
Kæri hrægammur: Það er erfitt að vera ráðherra. Það skilur þá enginn

Kæri hrægammur: Það er erfitt að vera ráðherra. Það skilur þá enginn

Hrægammarnir skilja ekki, að ef bónusar hjá bankastarfsmönnum mega ekki fara yfir 100% af launum þeirra þá eru þeir í höftum. Þeir skilja heldur ekki hversu erfitt er að vera ráðherra á Íslandi. „Sjáið t.d. eins og núna. Það skilur enginn hvað forsætisráðherrann segir. Hann segir að Íslandi gefist mikil tækifæri með hlýnandi loftslagi þegar […]

Ritstjóri Herðubreiðar 06/04/2014 Meira →
Svona gæti Lækjargata litið út. Lækurinn færður upp á yfirborðið

Svona gæti Lækjargata litið út. Lækurinn færður upp á yfirborðið

Eins og nafnið bendir til er lækur undir Lækjargötu, en langt er síðan hann var settur í stokk og malbikað yfir. Nú hefur Magnea Guðmundsdóttir arkitekt teiknað upp skemmtilega mynd af því hvernig „endurlífga“ mætti lækinn og breyta götumyndinni. Hugmyndin felur í sér að helmingi núverandi akstursleiðar verði breytt í eins konar síki eins og þekkt eru í ýmsum borgum. […]

Ritstjóri Herðubreiðar 06/04/2014 Meira →
Blessuð mjólkin: Verðmætum er hellt niður frekar en að lækka verð til neytenda

Blessuð mjólkin: Verðmætum er hellt niður frekar en að lækka verð til neytenda

Milliliðir í mjólkurframleiðslu hella frekar niður verðmætum en að lækka verð til neytenda. Þetta fullyrðir Þórólfur Matthíasson prófessor í hagfræði í grein í Herðubreið og vitnar í ummæli Guðna Ágústssonar, framkvæmdastjóra Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði. Í grein sinni fjallar Þórólfur um ýmis vandkvæði við að flytja út skyr til Evrópu, eins og samtök Guðna vilja […]

Ritstjórn 04/04/2014 Meira →
Forsætisráðherra: Hópur Íslendinga fagnaði Hruninu og elur með sér draum um „vonlausa Ísland“

Forsætisráðherra: Hópur Íslendinga fagnaði Hruninu og elur með sér draum um „vonlausa Ísland“

Hópur Íslendinga fagnaði efnahagslegum óförum landsins enda voru þær staðfesting á skoðunum hans og lífsviðhorfum. Þetta sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í ræðu á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins í dag. Ekki kom fram um hverja væri að ræða, en ráðherrann sagði m.a.: „Allt frá efnahagshruninu hefur markvisst verið að því unnið að tala land og þjóð niður. […]

Ritstjórn 03/04/2014 Meira →
Déjà vu? Blokkir í viðskiptum, himinháir bónusar og helmingaskipti

Déjà vu? Blokkir í viðskiptum, himinháir bónusar og helmingaskipti

Vefritið Kjarninn birtir í dag kunnuglega mynd af íslensku viðskiptalífi: Blokkir í viðskiptalífinu búa sig undir að takast á um eignarhald á bönkunum en ríkisstjórnarflokkarnir hyggjast skipta þeim á milli valinna flokksmanna samkvæmt gamalli helmingaskiptareglu. Til að auðvelda þessar eignatilfærslur verða skipaðir tveir nýir seðlabankastjórar, hvor úr sínum stjórnarflokki, til að útdeila verðmætum úr eignarhaldsfélagi bankans, […]

Ritstjórn 03/04/2014 Meira →
Halla lendir í Tepokahreyfingunni: Koch-bræður reyna að stöðva almenningssamgöngur

Halla lendir í Tepokahreyfingunni: Koch-bræður reyna að stöðva almenningssamgöngur

Halla Gunnarsdóttir heldur áfram í Herðubreið að senda íslensku þjóðinni bréf frá Nashville, þar sem ýmislegt drífur á daga hennar. Nú síðast hefur hún kynnst á eigin skinni vinnubrögðum Tepokahreyfingarinnar – eða öllu heldur helstu fjárhagslegu bakhjörlum hennar – sem berjast gegn bættum almenningssamgöngum í Nashville: „Nú hefur hinni rökföstu stopp-hreyfingu borist öflugur liðsauki, nánar […]

Ritstjóri Herðubreiðar 03/04/2014 Meira →
Björn Valur: Það eru til milljón svona skjöl. Hjáróma raddir í báðum stjórnarflokkum um dýrar aðgerðir

Björn Valur: Það eru til milljón svona skjöl. Hjáróma raddir í báðum stjórnarflokkum um dýrar aðgerðir

„Það eru örugglega til milljón svona skjöl og gögn frá síðasta kjörtímabili enda var á þeim tíma mikil vinna lögð í þessi mál. Niðurstaðan var alltaf sú að beita ætti félagslegum aðgerðum sem miðuðu að því að bæta hag þeirra verst settu og forða sem flestum undan falli og þroti. Sem var og það sem […]

Ritstjórn 02/04/2014 Meira →
Rökrétt að skila handritunum. Eða brenna þau. Þau eru hvort eð er bara „bling“ í okkar augum

Rökrétt að skila handritunum. Eða brenna þau. Þau eru hvort eð er bara „bling“ í okkar augum

Það er rökrétt niðurstaða af umræðu og stefnumörkun síðustu ára, þar sem menningu er stillt upp öndvert við heilbrigði, að skila Dönum aftur handritunum. Þau eru hvort eð er lítið annað skraut, aukahlutir sem við hengjum utan á okkur til að montast fyrir útlendingum. Þetta er ein niðurstaða Svanhildar Óskarsdóttur, starfsmanns Árnastofnunar, í grein í […]

Ritstjórn 02/04/2014 Meira →
Gísla Marteini bent á staðreyndir: Í Kópavogi er gott að gista og gaman að leita að ást á pöbbnum

Gísla Marteini bent á staðreyndir: Í Kópavogi er gott að gista og gaman að leita að ást á pöbbnum

Fjölmargir hafa komið Kópavogi til varnar í hápólitískri deilu sem sprottin er af ummælum Gísla Marteins Baldurssonar, um að hann bæði til guðs „að einhver túristi lendi ekki í því að vera á einhverju glötuðu hóteli í Kópavogi, fyrirgefið þið. Vegna þess að hann verður bara brenndur af því. Það er ekki gaman þar.“ Langmesta […]

Ritstjóri Herðubreiðar 02/04/2014 Meira →
„Aðgöngumiðar fjúka um alla hveri.“ Landeigendur biðja líka um „frjáls framlög“

„Aðgöngumiðar fjúka um alla hveri.“ Landeigendur biðja líka um „frjáls framlög“

„Ég greiddi 2.400 kr. í dag fyrir 4 inn á Geysissvæðið. Þetta fór allt friðsamlega fram enda voru fleiri starfsmenn að taka gjald en ferðamenn að skoða svæðið þegar okkur bar að garði.“ Þannig lýsir Stefán Karl Stefánsson leikari upplifun sinni af heimsókn á Geysissvæðið í gær. Þar er nú aftur krafist gjalds fyrir aðgang. […]

Ritstjórn 02/04/2014 Meira →
0,937