Efst á baugi
Forsætisráðherra: Ísland græðir á hlýnun jarðar. „Tvímælalaust mikil tækifæri“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra telur mikil tækifæri fyrir Íslendinga felast í hlýnun jarðar. Þetta sagði hann í viðtali við Ríkisútvarpið. Í byrjun viku kom út skýrsla Sameinuðu þjóðanna sem staðfestir að mannkyni öllu stafi stórkostleg hætta af þeim loftslagsbreytingum sem orðnar eru og verða af manna völdum á næstu áratugum. Erlendir ráðamenn hafa hvatt til […]
Tekjuháir karlar á höfuðborgarsvæði vilja helst nýjan Sjálfstæðisflokk. Tæp 40 prósent gætu kosið framboðið
Tæp fjörutíu prósent aðspurðra í könnun MMR gætu hugsað sér að kjósa nýtt framboð hægri manna, „sem nyti stuðnings Þorsteins Pálssonar fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins,“ eins og það var orðað í spurningunni. Þetta er meiri stuðningur en mælst hefur við önnur hugsanleg ný framboð á undanförnum árum. MMR vísar í kannanir á hugsanlegu fylgi Bjartrar framtíðar […]
Davíð Þór: Noah er ólýsanlega vond mynd. 138 mínútur af heimskulegum ákvörðunum
„Ég hef gaman af biblíumyndum, stórslysamyndum og skrímslamyndum. Noah er þetta allt. En það er sama undir hvern þessara „sjanra“ við setjum hana. Hún verður alltaf í hópi þess versta sem gert hefur verið á því sviði,“ segir Davíð Þór Jónsson guðfræðingur í leiftrandi dómi um samnefnda kvikmynd. Davíð skrifar ennfremur: „Það er erfiðara að […]
Hallgrímur: Leikhúsið afmeyjað. Ólafur Ragnar átti Most Valuable Putin Moment
Líkt og helftin af þjóðinni fylgdist Hallgrímur Helgason rithöfundur með beinni útsendingu frá lokasýningu á Englum alheimsins í gærkvöldi. Hann skrifar um þá upplifun „leikdóm“ í Herðubreið, þar sem segir meðal annars: „Revíuleikþátturinn eftir hlé, þar sem forseti Íslands var færður úr sæti á fremsta bekk og upp á svið, sýndi vel að unga kynslóðin þorir […]
Mjög fáir eiga rétt á fullri millifærslu. Ráðherra ekki með dæmin á hreinu
Mjög fáir eiga rétt á fullri millifærslu til skuldalækkunar samkvæmt tillögum ríkisstjórnarinnar. Þetta kom fram í máli forsætisráðherra á Stöð 2 í kvöld. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sat fyrir svörum í þættinum Stóru málin, þar sem Lóa Pind Aldísardóttir spurði hann út í millifærslutillögur ríkisstjórnarinnar. Lóa Pind bar saman nokkrar glærur annars vegar frá kynningu í […]
Tvískinnungur um fjárhættuspil: Skyndibiti er leyfður, en úrvals veitingahús ekki
Ýmsar tegundir af fjárhættuspili eru leyfðar á Íslandi, happdrætti, bingó, getraunir, lottó, skafmiðar, spilakassar á börum… allt er þetta löglegt og leyfilegt. En casino er bannað. Þetta skrifar Valgarður Guðjónsson í Herðubreið í tilefni af frumvarpi Willums Þórs Þórssonar um að að leyfa rekstur á því sem kallað er „Casino“ í útlöndum. „Það má kannski […]
Hampiðjan: Forstjórinn fær eina og hálfa milljón evra fyrir að hætta störfum
Fráfarandi forstjóri Hampiðjunnar, Jón Guðmann Pétursson, fær um 1,5 milljónir evra við starfslok sín í vor samkvæmt samningi sem stjórn félagsins hefur samþykkt. Það jafngildir um 240 milljónum íslenskra króna. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar Íslands sem greint er frá í Kjarnanum. Í tilkynningunni segir að þetta sé kostnaður Hampiðjunnar vegna starfslokanna og uppgjörs […]
Heróínhagkerfið í hnotskurn: Má bjóða þér hreina nál? Þetta er gott stöff
Andri Snær Magnason rithöfundur rakst nýlega á fimm ára gamla töflu sem Samtök atvinnulífsins höfðu tekið saman um virkjanir á Íslandi fram til 2015 og verkefnin sem nýta mætti orkuna til. Það sem birtist þar, segir Andri Snær, er „heróínhagkerfið í hnotskurn“: „Á línuritinu má sjá áætlun um 13.000 ársverk til að skapa 1200 störf. […]
Financial Times: Tökum upp auðlegðarskatt á heimsvísu. Annars fer illa
Sífellt meiri auðsöfnun fárra milljarðamæringa stefnir hagkerfi heimsins og pólitískum stöðugleika í hættu að óbreyttu. Við því verður að bregðast með því að taka upp auðlegðarskatt á heimsvísu. Þetta er niðurstaða franska hagfræðingsins Thomsasar Pikkety í nýlegri grein í Financial Times. Pikkety, sem kennt hefur við MIT og virta franska háskóla, hefur sérhæft sig í […]
Vill maðurinn ekki bjór? Svona á einmitt ekki að bregðast við því. Leiðbeiningar Davíðs Þórs
Vinsamlega hafðu í huga að óvirkur alkóhólisti, sem finnur hjá sér þörf til að ræða alkóhólisma sinn, velur sennilega ekki Ölstofu Kormáks & Skjaldar á föstudagskvöldi til þess. Þetta er meðal leiðbeininga Davíðs Þórs Jónssonar um hvernig bregaðst skal við þegar einhver afþakkar áfengi. Fólk kynni að halda að við svo búið sæti, en Davíð […]
Helgarhugvekja: Skilnaðarbörn kalda stríðsins og fjölskylduleyndarmál Íslendinga
Íslendingar eru skilnaðarbörn kalda stríðsins. Fórnarlömb haturs og beiskju vegna trúnaðarrofs sem þeir vissu aldrei um og svika sem þeir skilja ekki. Og réttur barnsins til að lifa eigin lífi víkur fyrir reiði og særðu stolti foreldris, sem setur á tölur um svik og misgerðir allra annarra en sín meðan það keyrir barnið í búðina […]
Eru stjórnarflokkarnir að kaupa kosningar og völd fyrir skattfé – aftur?
Bjarni Benediktsson ætti kannski að hlusta minna á Framsóknarflokkinn og meira á sjálfan sig, segir Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans í grein í vefritinu í dag. Hann fjallar þar um skuldamál ríkisstjórnarinnar og minnir á, að í frumvarpi um þau sé ekki gert ráð fyrir neinu verðbólguviðmiði í útreikningum, heldur skuli fjármálaráðherra ákvarða það með […]



