Efst á baugi
Guðni og útgerðarmenn styðja tillögu – aðrir ekki
Af þeim tuttugu og fjórum umsögnum, sem utanríkismálanefnd hafa borist um tillögu utanríkisráðherra um að draga til baka aðildarumsókn að ESB, er mælt með samþykkt hennar í tveimur. Þær eru frá Samtökum mólkur- og kjötvinnslufyrirtækja, sem Guðni Ágústsson veitir forystu, og Landssambandi íslenskra útgerðarmanna. Frá þessu greinir á Evrópublogginu. Aðrir hvetja til þess að tillagan […]
Enn fjölgar gjaldmiðlum: Isracoin kemur í næstu viku
Í næstu viku verður „gefinn út“ ísraelski rafgjaldmiðilinn isracoin. Hann er byggður á svipuðum grunni og bitcoin og hinn íslenski auroracoin, sem Íslendingum bauðst að sækja rafrænt í vikunni. Frá þessu er greint í ísraelska blaðinu Ha´aretz í dag. Ísraelsku „höfundarnir“ fara þó nýja leið í útgáfunni: Í fyrri hluta hennar – á miðvikudag – […]
Hvenær eru 13% bara 4,5%? Prósentutölusúpa dagsins
Fjölmargir hafa æft sig í prósentureikningi í dag eftir að hafa fylgst með kynningu á og lesið útfærslu ríkisstjórnarinnar í skuldamálum. Meðal þeirra er Vilhjálmur Birgisson verkalýðsforingi sem á erfitt með að skilja málflutning stjórnarflokkanna. Vilhjálmur skrifar m.a.: „Í tillögum sérfræðingahópsins um skuldaleiðréttingar var gert ráð fyrir að verðtryggð húsnæðislán yrðu færð niður um fjárhæð […]
Palladómur: Andlit atvinnulífsfélagsfræðinnar – eða: frá Benidorm til Kasakstan
Sé fræðigreinin atvinnulífsfélagsfræði gúggluð dúkka ekki upp ýkja margar síður. Þær eru eiginlega frekar fáar. Svo allrar nákvæmni sé gætt eru þær 154. Til samanburðar má geta þess að leitarorðið hundasálfræði skilar 417 niðurstöðum en snákaolíusölumaður aðeins 31. Atvinnulífsfélagsfræði er sumsé einhverstaðar mitt á milli snákaolíusölumennsku og hundasálfræði hvað vinsældir varðar. Það sem vekur kannski […]
Tryggvi ætlar að sækja um lækkun – Árni stórtapar á Helguvík
Tryggvi Þór Herbertsson, verkefnastjóri ríkisstjórnarinnar í skuldamálum, ætlar sjálfur að sækja um skuldalækkun í samræmi við tillögur sem kynntar voru í nóvember. Þetta sagði hann í samtali við morgunútvarp Rásar 2 í morgun. Tryggvi sagði betri fjárfestingu og öruggari fjárfestingu ekki bjóðast enda gæti „ávöxtunin“ verið allt að 40 prósent. Fréttablaðið greinir frá því að […]
Frosti fær kaldar kveðjur: Er enginn ánægður með þetta?
„Er enginn ánægður með þetta?“ spurði Frosti Sigurjónsson alþingismaður eftir viðbrögð við facebook-færslu þar sem hann fagnar því að skuldafrumvörp ríkisstjórnarinnar séu komin til umfjöllunar í þinginu. „Góðar fréttir! Í dag var leiðréttingarfrumvörpum ríkisstjórnarinnar dreift á Alþingi. Aðgerðirnar munu ná til allt að 100 þúsund heimila og heildarumfang leiðréttingarinnar verður allt að 150 milljarðar,“ skrifaði […]
Úr ráðuneytinu í fótboltann í Nashville: Halla skrifar heim
Halla Gunnarsdóttir, sem var aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra síðastliðið kjörtímabil, flutti fyrir nokkrum mánuðum til Nashville í Tennessee. Í sendibréfaröð í Herðubreið, sem hún kallar „Kæra Ísland,“ lýsir Halla lífinu þar ytra fyrir löndum sínum og birtist fyrsta bréfið í dag. Þar kemur meðal annars fram að eftir ótal atvinnuumsóknir varð niðurstaðan er hún er […]
Öflugur hópur penna á Herðubreið
Á nýjum vef Herðubreiðar er lögð áhersla á vel skrifaðan texta. Í því skyni hefur vefurinn fengið til liðs við sig öflugan hóp penna sem birta munu pistla sína reglulega. Þeir eru (í stafrófsröð): Arnaldur Sigurðarson, Árni Múli Jónasson, Björgvin Valur Guðmundsson, Björn Jörundur Friðbjörnsson, Björn Valur Gíslason, Davíð Þór Jónsson, Friðrik Þór Guðmundsson, G. […]



