Svampurinn
Svampur heiti ég Sveinsson
og sogað í mig get
allt sem úr öðrum kemur,
undur jafnt sem fret.
Og þegar þau vilja viðtöl
þá vind ég heilann minn,
en þá vill það sullast saman
sem ég lét þar inn.
Hallgrímur Helgason
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021